Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Einn léttur og góður.....;)
28.10.2008 | 16:24
Hæhæ kæru vinir, loksins kemur eitthvað hér frá mér. Voruð þið nokkuð búin að sakna mín??? Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla. Það er um að gera að reyna að vera léttur og hress og brosa við heiminum. Og svo er líka gott að taka smá pásu frá þessu krepputali, maður er eiginlega komin með upp í kok...eða ég allavega. Vona að ég hafi fengið einhvern til að brosa....og það skemmir sko ekki ef ég gat fengið einhvern til að hlæja. Það er toppurinn. Eigið góðan dag og verið góð við hvort annað, og ekki gleyma að brosa það kostar ekkert. Skjáumstum sæta fólk. kv Gunna broshýra. |
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Erfiður og sorglegur dagur...:(
23.10.2008 | 14:48
Hæhæ mínir kæru vinir.
Þessi dagur er bæði erfiður og sorglegur.
En pabbi heitin hefði átt afmæli í dag og hefði orðið 72 ára. En hann dó í febrúar í fyrra.
Blessuð sé minning hans. Ég sakna hans mikið.
En í morgun fékk ég hringingu sem ég átti von á að fá á hverjum degi síðan um helgina, ég hrökk við í hvert skipti sem síminn hringdi núna síðustu daga. En ég fékk þær fregnir í morgun að ein systir hennar mömmu dó í morgun eftir mikil og erfið og kvalafull veikindi.
Við vorum búin undir þetta um síðustu helgi þar sem þá var alveg útséð um að það var ekkert hægt að gera meira fyrir hana, lyfin voru hætt að virka.
En frá því um helgina að þá fann ég á mér eða fékk að vita það án þess að mannvera segði mér það, að hún muni deyja þennann dag sem sagt í dag.
Já ég veit að ég er skrítin en samt engin norn allavega ekki vond norn.
En ég vonaði samt svo innilega að það yrði ekki á þessum degi.
Þetta er önnur systir hennar mömmu sem deyr á þessum degi. Vona að það verði ekki fleiri dánar-fregnir í fjölskyldunni í bráð, það er komið nóg.
Þetta er önnur systirin sem deyr á þessu ári. Þannig að þær eru bara 10 sem eru eftir á lífi. Ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, nú er ég búin að fá að tjá mig.
Hafið það gott elsku bloggvinir.
Skjáumstum.
Kv. Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Jóla hvað?????
19.10.2008 | 23:15
Hæhæ kæru vinir....
Ég er búin að fá þetta sent á öll e-mailin mín og það fleirri en eitt og tvö.
Svo þessar myndir fara eins og eldur í sinu í netheiminum.
Doltið skondnar myndir sko.....
ÞETTA GETUR EKKI VERIÐ TILVILJUN..........EÐA HVAÐ???!!!
Mátti til að setja þetta hér inn.
Ég tek kannski smá bloggfrí næstu daga, vona að þið hafið það sem best.
Munið að kommenta.
Skjáumst sæta fólk.
Kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Já nú er það grænt.....;)
18.10.2008 | 00:29
Hæhæ kæru vinir....
Hér ætla ég að koma með eitthvað á ljúfu nótunum...sem nefnist.....
GRÆNT HJARTA TIL YKKAR .....MEÐ VON.
Það kemur að þeim tímapunkti í lífi þínu þegar þú áttar þig á því,
Hver skiptir þig máli
...og hver ekki.
Og líka, hver gerir það ekki lengur...
og hver mun aldrei gera það.
Og eins, hver mun ævinlega skipta öllu máli.
HAFÐU ÞVÍ EKKI ÁHYGGJUR AF FÓLKI ÚR FORTÍÐINNI.
Það er ástæða fyrir því að þau tilheyra ekki framtíð þinni.
Færðu hverjum þeim sem þú þekkir og vilt ekki glata, þetta hjarta,
þar á meðal mér....ef þér er annt um mig.
Reyndu að krækja í 12, það er ekki víst að það reynist auðvelt...
Vertu vingjarnlegri en þú átt að þér, því allir sem þú hittir eiga við sinn vanda að stríða....
Ég fékk þetta sent í pósti og fannst þetta svo fallegt að ég ákvað að deila því með ykkur svo að sem flestir geti lesið þetta.
Læt þetta duga í bili.
Skjáumstum sæta fólk og munið að kommenta.
Kv. Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Jæja já....;)
17.10.2008 | 00:18
Hæhæ kæru vinir....
Jæja þar sem færslan um andlát krónunar féll ekki beint í góðan farveg hjá fólki, allavega voru ekki margir sem kommentuðu svona miða við heimsóknir en það bíttar engu. Kannski leggst þessi tilkynning betur í fólk...
En þessi seðill hrinur inn í tölvur landsmanna eins og enginn kreppa sé....Já sá eini sem er greinilega ekki í falli....
og ef hann væri gjaldgengur gjaldmiðill að þá væri bankabókin mín orðin vel feit...
Nýr seðill í umferð á Mánudag...
Og nýji bankinn heitir KGB......
P.S. Töpum ekki húmornum.....
Mátti til með að koma með einn svona, og ég á eitthvað til viðbótar sem ég ætla að setja hér inn bara svona til að fá fólk til að brosa og horfa á björtu hliðarnar á þessum erfiðu tímum, ekki veitir af.
Skjáumstum sæta fólk.
Bros, faðmlag og stórt KNÚSSSSS til ykkar allra esssgurnar.
Ekki gleyma að kommenta.
Kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Knúsvikan mikla....;D
14.10.2008 | 23:56
Hæhæ kæru vinir...
Ég fékk þetta sent og vildi deila því með ykkur. Líka að hugga ykkur vegna bloggfærslunar á undan...að þá fannst mér alveg upplagt að knúsa ykkur.
KNÚSVIKAN MIKLA
Þegar staðan á íslandinu okkar er eins og hún er er afar mikilvægt að við stöndum öll saman, sýnum nærgætni, og látum ekki svartsýni og pirring ná tökum á okkur. Það þurfa allir að hugsa vel um sig, gæta þess að fá nægan svefn og velta sér ekki of mikið uppúr fréttum hvers dags (Gott að skammta sér ákveðið magn á dag) En það er ekki síður mikilvægara að við hugum að öðrum og séum vakandi yfir vinum, kunningjum, ættingjum okkar og samferðafólki, við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta og vera til staðar. Að mínu mati er eitt það mikilvægasta sem við getum gert er að knúsast, gott faðmlag er það sem að allir þurfa á að halda og sanniði til að þeir sem fá nóg af knúsi eru ríkir og eru tilbúnari fyrir lífið og verkefni dagsins. |
Ég skora á alla að taka þátt....... Fjölskylduhópknús á hverjum morgni Ánægja með það sem menn hafa er mesti og varanlegasti auðurinn Ef þú ert ekki ánægður með það sem þú hefur, hví skyldir þú vera sælli með meira? Ég sendi STÓRT KNÚS til ykkar allra elskurnar. Skjáumst sæta fólk. Munið að kommenta. Kv. Gunna. |
Bloggar | Breytt 15.10.2008 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jahá....
14.10.2008 | 15:02
Jahá....mér barst þessi tilkynning og ákvað að láta hana berast áfram.
Hvað gerum við þá???
Við verðum að hafa húmorinn í lagi annars endum við eins og krónan....
Skjáumstum sæta fólk og munið að kommenta.
Og alls ekki að gleyma að brosa.
Kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bara láta vita...;)
11.10.2008 | 20:34
Hæhæ kæru vinir.
Hvað er að frétta af ykkur???
Það er allt þokkalegt að frétta af mér...Ég hef svo sem ekkert að segja þannig lagað, nema það að þá er ég bara í einhverju letikasti kannski kreppuleti??? Nei djókur..
Var svona með þessu bloggi ( ef blogg skildi kalla) að láta vita að ég er lifandi...allavega ennþá..
Vona að þið hafið það sem best og góða helgi. Knús knús.
Kv. Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Stjörnuspá....;)
2.10.2008 | 15:46
Hahaha...bara fyndið.
Stjörnuspá
myspace-chillarans.
Vatnsberinn (20.jan-18.feb.)
Þú'st, skilurðu. Fara á feitt djamm um helgina. Vera pimpin'n shit og taka á því. Er það ekki, skvís?
Fiskarnir.(19.feb-20.mars)
Hey ma'r! Færð óvænt boð um að koma í gúddsjitt partý. Ég meina wtf, skiluru!! Allt happening bara...
Hrúturinn.(21.mars-19.apríl)
Don't say it, skiluru. Á bara að chilla? Helgin gæti orðið fly, naw'mean? Veit ekki með þessa gellu samt. Fokkitt ma'r.
Nautið.(20 apríl-20. mars)
Þú ættir að slaka á hugsa um yours truly, skiluru hvað éraðfara? Þú'st, eina sem matters er að vera kúl áðí.
Tvíburarnir.(21. mai-21. júni)
Þú ferð í massagóða ferð, skiluru? En shit hvað allt þetta beatiful people verður myglað hehehe.
Krabbinn.(22.júni-22.júli)
Það verður crazy erfitt að chilláði um helgina en það er hætt við að þú verðir bara freaking kúl. Þokkkaaaaliiiiiiiga!
Ljónið.(23.júli-22 ágúst)
Hey, það þýðir ekkert að vera soft skiluru. Kemur bara og lets go all the way, ma'r. Þú verður ekkert smá djammin. Fílaða, úé.
Meyjan.(23. ágúst- 22. sept)
Þú hittir megagellu nirrí bæ, maður, þú'st. Og hún er bara:" Hey, þú commentaðir kúl þarna áðan, jee bojjj!! I praise you, sæti fír.
Vogin.(23.sept-23.okt)
Vá, það liggur vel á þér núna, skvís. Bara any time any place, allt í fíling. Mega chillin and illin, jó. Tha whole week, nó wat æm seyin....!!!
Sporðdrekinn.(23.okt-21.nóv)
Hvað sem á gengur skaltu keep it real. Það er all that matters. Verðum svo bara í speisi í góðum fíling, you and me baby.
Bogmaður.(22.nóv-21.des)
Hvað var málið með þig og gaurinn maður. Ég meina wtf, þú'st, Hristu þetta af þér og komdu í par-tay um helgina. ÞAR verðum við læk ðe men, jú nó!
Steingeit.(22.des-19.jan)
Jó, maður. Megaprops fyrir addið. Við verðum að git down maður. Sem fyrst. PEACE! Æm át.
Hvað segið þið svo við þessu??? Er þetta ekki bara hin fínasta spá???..hahahahaah
Kv Gunna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)