Erfiður og sorglegur dagur...:(


Hæhæ mínir kæru vinir.
Þessi dagur er bæði erfiður og sorglegur.
En pabbi heitin hefði átt afmæli í dag og hefði orðið 72 ára. En hann dó í febrúar í fyrra.
Blessuð sé minning hans. Ég sakna hans mikið.

En í morgun fékk ég hringingu sem ég átti von á að fá á hverjum degi síðan um helgina, ég hrökk við í hvert skipti sem síminn hringdi núna síðustu daga. En ég fékk þær fregnir í morgun að ein systir hennar mömmu dó í morgun eftir mikil og erfið og kvalafull veikindi.
Við vorum búin undir þetta um síðustu helgi þar sem þá var alveg útséð um að það var ekkert hægt að gera meira fyrir hana, lyfin voru hætt að virka.
 En frá því um helgina að þá fann ég á mér eða fékk að vita það án þess að mannvera segði mér það, að hún muni deyja þennann dag sem sagt í dag.
Já ég veit að ég er skrítin en samt engin norn allavega ekki vond norn.
 En ég vonaði samt svo innilega að það yrði ekki á þessum degi.
Þetta er önnur systir hennar mömmu sem deyr á þessum degi. Vona að það verði ekki fleiri dánar-fregnir í fjölskyldunni í bráð, það er komið nóg.
Þetta er önnur systirin sem deyr á þessu ári. Þannig að þær eru bara 10 sem eru eftir á lífi. Ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, nú er ég búin að fá að tjá mig.
Hafið það gott elsku bloggvinir.
 Skjáumstum.
Kv. Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Samúðarkveðja til þín elskuleg, sendi styrk og hlýju.

Ásdís Sigurðardóttir, 23.10.2008 kl. 14:57

2 Smámynd: Erna

Elsku Gunna mín, innileg samúðarkveðja til þín. Guð gefi þér og þínum styrk. ég mun hugsa til þín vinkona

Erna, 23.10.2008 kl. 15:06

3 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Þakka ykkur innlega fyrir stelpur mínar.

knús knús til ykkar.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 23.10.2008 kl. 15:36

4 Smámynd: Erna

Góða nótt elsku vinkona

Erna, 23.10.2008 kl. 23:16

5 Smámynd: Erna

Gaman að sjá Dóru hér, hún er frábær. Góða nótt elsku Gunna mín

Erna, 25.10.2008 kl. 00:28

6 Smámynd: Aprílrós

Sendi þér samúðarkveðjur Guðrún mín , knús og kreist ;)

Aprílrós, 25.10.2008 kl. 08:47

7 Smámynd: Gulli litli

Mína dýpstu samúð..

Gulli litli, 25.10.2008 kl. 09:11

8 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Þakka ykkur öllum innilega fyrir.

Knús knús til ykkar allra.

Góða nótt elskurnar.

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 26.10.2008 kl. 01:23

9 Smámynd: Sigrún Óskars

samúðarkveðjur frá mér

Sigrún Óskars, 26.10.2008 kl. 22:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband