Bloggfærslur mánaðarins, október 2008

Einn léttur og góður.....;)

Hæhæ kæru vinir, loksins kemur eitthvað hér frá mér.

Voruð þið nokkuð búin að sakna mín???

HVAÐ GERIR PABBI ÞINN ???

Nonni litli er í sjötta bekk grunnskóla.
Dag einn var samfélagsfræði og þá spurði kennarinn hvað feður þeirra störfuðu.
Börnin svöruðu eins og þeim er lagið: Pabbi minn er lögga, brunaliðsmaður, skrifstofumaður, vinnur í verslun og svo framvegis.
En kennarinn tók eftir því að Nonni litli var óvenju hljóður og lét lítið fara fyrir sér.
Hvað gerir svo pabbi þinn, spurði kennarinn Nonna litla.
Hann dansar nakinn fyrir framan karla á öllum aldri á veitingastað á kvöldin og á næturnar.
Svo græðir hann fullt á því að fara með þeim áhorfendum sem best bjóða út í portið á bak við veitingastaðinn þar sem hann dansar einkadans fyrir þá í nokkrar mínútur.
Kennarinn varð eðlilega mjög undrandi yfir svari Nonna litla og í miklu fáti skipaði hann hinum krökkunum að fara að lita, en Nonna litla tók hann afsíðis.
Er þetta alveg satt sem þú sagðir um hann pabba þinn … Dansinn og allt það?
Nei, nei, sagði Nonni litli feiminn.
Pabbi vinnur hjá Kaupþingi-Búnaðarbanka en ég þorði sko alls ekki að segja það fyrir framan hina krakkana. 
 
Hahahaha......þessi er sterkur.

Það er um að gera að reyna að vera léttur og hress og brosa við heiminum. Og svo er líka gott að taka smá pásu frá þessu krepputali, maður er eiginlega komin með upp í kok...eða ég allavega.

Vona að ég hafi fengið einhvern til að brosa....og það skemmir sko ekki ef ég gat fengið einhvern til að hlæja.

Það er toppurinn.

Eigið góðan dag og verið góð við hvort annað, og ekki gleyma að brosa það kostar ekkert.

Skjáumstum sæta fólk.

kv Gunna broshýra.Grin

 


Erfiður og sorglegur dagur...:(


Hæhæ mínir kæru vinir.
Þessi dagur er bæði erfiður og sorglegur.
En pabbi heitin hefði átt afmæli í dag og hefði orðið 72 ára. En hann dó í febrúar í fyrra.
Blessuð sé minning hans. Ég sakna hans mikið.

En í morgun fékk ég hringingu sem ég átti von á að fá á hverjum degi síðan um helgina, ég hrökk við í hvert skipti sem síminn hringdi núna síðustu daga. En ég fékk þær fregnir í morgun að ein systir hennar mömmu dó í morgun eftir mikil og erfið og kvalafull veikindi.
Við vorum búin undir þetta um síðustu helgi þar sem þá var alveg útséð um að það var ekkert hægt að gera meira fyrir hana, lyfin voru hætt að virka.
 En frá því um helgina að þá fann ég á mér eða fékk að vita það án þess að mannvera segði mér það, að hún muni deyja þennann dag sem sagt í dag.
Já ég veit að ég er skrítin en samt engin norn allavega ekki vond norn.
 En ég vonaði samt svo innilega að það yrði ekki á þessum degi.
Þetta er önnur systir hennar mömmu sem deyr á þessum degi. Vona að það verði ekki fleiri dánar-fregnir í fjölskyldunni í bráð, það er komið nóg.
Þetta er önnur systirin sem deyr á þessu ári. Þannig að þær eru bara 10 sem eru eftir á lífi. Ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, nú er ég búin að fá að tjá mig.
Hafið það gott elsku bloggvinir.
 Skjáumstum.
Kv. Gunna.


Jóla hvað?????


Hæhæ kæru vinir....
Ég er búin að fá þetta sent á öll e-mailin mín og það fleirri en eitt og tvö.
Svo þessar myndir fara eins og eldur í sinu í netheiminum.
Doltið skondnar myndir sko.....emoticon


ÞETTA GETUR EKKI VERIÐ TILVILJUN..........EÐA HVAÐ???!!!





Mátti til að setja þetta hér inn.

Ég tek kannski smá bloggfrí næstu daga, vona að þið hafið það sem best.
Munið að kommenta.
Skjáumst sæta fólk.
Kv Gunna.


Já nú er það grænt.....;)


Hæhæ kæru vinir....emoticon
Hér ætla ég að koma með eitthvað á ljúfu nótunum...sem nefnist.....




 GRÆNT HJARTA TIL YKKAR .....MEÐ VON.emoticon





Það kemur að þeim tímapunkti í lífi þínu þegar þú áttar þig á því,
Hver skiptir þig máli
...og hver ekki.
Og líka, hver gerir það ekki lengur...
og hver mun aldrei gera það.
Og eins, hver mun ævinlega skipta öllu máli.
HAFÐU ÞVÍ EKKI ÁHYGGJUR AF FÓLKI ÚR FORTÍÐINNI.
Það er ástæða fyrir því að þau tilheyra ekki framtíð þinni.
Færðu hverjum þeim sem þú þekkir og vilt ekki glata, þetta hjarta,
þar á meðal mér....ef þér er annt um mig.
Reyndu að krækja í 12, það er ekki víst að það reynist auðvelt...
Vertu vingjarnlegri en þú átt að þér, því allir sem þú hittir eiga við sinn vanda að stríða....


Ég fékk þetta sent í pósti og fannst þetta svo fallegt að ég ákvað að deila því með ykkur svo að sem flestir geti lesið þetta.

Læt þetta duga í bili.
Skjáumstum sæta fólk og munið að kommenta.
Kv. Gunna.


Jæja já....;)


Hæhæ kæru vinir....emoticon
Jæja þar sem færslan um andlát krónunar féll ekki beint í góðan farveg hjá fólki, allavega voru ekki margir sem kommentuðu svona miða við heimsóknir en það bíttar engu. Kannski leggst þessi tilkynning betur í fólk...emoticon
En þessi seðill hrinur inn í tölvur landsmanna eins og enginn kreppa sé....Já sá eini sem er greinilega ekki í falli....emoticon 
og ef hann væri gjaldgengur gjaldmiðill að þá væri bankabókin mín orðin vel feit...emoticon



Nýr seðill í umferð á Mánudag...emoticon





Og nýji bankinn heitir KGB......emoticon



P.S. Töpum ekki húmornum.....emoticon
Mátti til með að koma með einn svona, og ég á eitthvað til viðbótar sem ég ætla að setja hér inn bara svona til að fá fólk til að brosa og horfa á björtu hliðarnar á þessum erfiðu tímum, ekki veitir af.
Skjáumstum sæta fólk.
Bros, faðmlag og stórt KNÚSSSSS til ykkar allra esssgurnar.emoticon
Ekki gleyma að kommenta.
Kv Gunna.


Knúsvikan mikla....;D

Hæhæ kæru vinir...

Ég fékk þetta sent og vildi deila því með ykkur. Líka að hugga ykkur vegna bloggfærslunar á undan...að þá fannst mér alveg upplagt að knúsa ykkur.

KNÚSVIKAN MIKLA
13. - 20. október 2008

Hefur þú knúsað í dag ?

Knúsum okkur í gegnum ástandið.


 

Þegar staðan á íslandinu okkar er eins og hún er er afar mikilvægt að við stöndum öll saman, sýnum nærgætni, og látum ekki svartsýni og pirring ná tökum á okkur. Það þurfa allir að hugsa vel um sig, gæta þess að fá nægan svefn og velta sér ekki of mikið uppúr fréttum hvers dags (Gott að skammta sér ákveðið magn á dag) En það er ekki síður mikilvægara að við hugum að öðrum og séum vakandi yfir vinum, kunningjum, ættingjum okkar og samferðafólki, við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta og vera til staðar. Að mínu mati er eitt það mikilvægasta sem við getum gert er að knúsast, gott faðmlag er það sem að allir þurfa á að halda og sanniði til að þeir sem fá nóg af knúsi eru ríkir og eru tilbúnari fyrir lífið og verkefni dagsins.

Það að koma á þessari Knúsviku þar sem að hvatt er til einstaklings og hópknúss á hverjum degi í eina viku er framlag kærleiksvefsins vegna stöðunnar í landinu okkar. Látum knús ganga og hefjum nýja byrjun í okkar frábæra landi áfram Ísland og í lok vikunnar er það knúsaðasta land í heimi.

Bros og knús í hvert hús

Sendu þessa síðu á eins marga og þú getur og hjálpaðu til við að gera knúsvikuna að veruleika og að allir á íslandi fái mikið af knúsi þessa daga, það þurfa allir á því að halda núna - knús skiptir máli -  knúsumst.

 
Júl.Júl     -  www.julli.is

 

Ég skora á alla að taka þátt.......

Fjölskylduhópknús á hverjum morgni
 
Einstaklings og hópknús á vinnustöðum


Knúsaðu börnin kvölds og morgna...ekki bara þessa viku


Knús fyrir svefninn og allir sofa betur


Ekki vera feyminn að knúsa...knús skiptir máli

Hefjum daginn í öllum fyrirtækjum með knúsi
 
Knús í alla skóla stóra sem smáa:
Nemendaknús - bekkjarknús - kennaraknús - knús í nesti -
knús sem heimaverkefni - húsvarðaknús - bókasafnsknús - viðurkenningaknús.

 

Knúsaðu maka þinn....oft....oft...og aftur.


Eldra fólk þarfnast oft meiri snertingar en aðrir og það er líka viðkvæmara fyrir stöðu mála og hefur áhyggjur af framtíð barnanna sinna. Í dag
skaltu fara og heimsækja ömmu, afa, frænda , frænku eða einhvern eldri borgara sem þú þekkir og gefa honum knús. Eldri fólk á nóg af súkkulaði, það þarf bara hlýtt og gott faðmlag og eitthvað af tímanum ykkar.

Sendu knús til þeirra sem eru lengra í burtu......
SMS knús.....
Email knús......
Bloggknús.......
Hringdu og gefðu knús.....

Ef þú gefur af þér, þá færðu það til baka - gefðu knús

Knús kostar ekki neitt....en skilar góðum og öruggum arði



Ánægja með það sem menn hafa er mesti og varanlegasti auðurinn

Ef þú ert ekki ánægður með það  sem þú hefur, hví skyldir þú vera sælli með meira?

Ég sendi STÓRT KNÚS til ykkar allra elskurnar.

Skjáumst sæta fólk.

Munið að kommenta.

Kv. Gunna.


Jahá....



Jahá....mér barst þessi tilkynning og ákvað að láta hana berast áfram.

 


Hvað gerum við þá???

 

Við verðum að hafa húmorinn í lagi annars endum við eins og krónan....

Skjáumstum sæta fólk og munið að kommenta.
Og alls ekki að gleyma að brosa.

 Kv Gunna.


Bara láta vita...;)


Hæhæ kæru vinir.emoticon
Hvað er að frétta af ykkur???

 Það er allt þokkalegt að frétta af mér...Ég hef svo sem ekkert að segja þannig lagað, nema það að  þá er ég bara í einhverju letikasti kannski kreppuleti???emoticon  Nei djókur..emoticon 
Var  svona með þessu bloggi ( ef blogg skildi kalla) að láta vita að ég er lifandi...allavega ennþá..emoticon 
Vona að þið hafið það sem best og góða helgi. Knús knús.
Kv. Gunna.


Stjörnuspá....;)

Hæhæ, já ég er enn að koma með eitthvað bull. Líka það að það er að koma helgi og þetta er svona helgarspá. En þessi stjörnuspá er kannski ekki ný en það er heldur engin dagsetning sem segir til um það hvernær hún er í gildi. Segjum bara að hún er í gildi allt árið um kring og fyrir allar helgar...


Stjörnuspá..öll merkin endilega kíktu...hehe...:)

Hahaha...bara fyndið.



Stjörnuspá
myspace-chillarans.


Vatnsberinn (20.jan-18.feb.)
Þú'st, skilurðu. Fara á feitt djamm um helgina. Vera pimpin'n shit og taka á því. Er það ekki, skvís?

Fiskarnir.(19.feb-20.mars)
Hey ma'r! Færð óvænt boð um að koma í gúddsjitt partý. Ég meina wtf, skiluru!! Allt happening bara...

Hrúturinn.(21.mars-19.apríl)
Don't say it, skiluru. Á bara að chilla? Helgin gæti orðið fly, naw'mean? Veit ekki með þessa gellu samt. Fokkitt ma'r.

Nautið.(20 apríl-20. mars)
Þú ættir að slaka á hugsa um yours truly, skiluru hvað éraðfara? Þú'st, eina sem matters er að vera kúl áðí.

Tvíburarnir.(21. mai-21. júni)
Þú ferð í massagóða ferð, skiluru? En shit hvað allt þetta beatiful people verður myglað hehehe.

Krabbinn.(22.júni-22.júli)
Það verður crazy erfitt að chilláði um helgina en það er hætt við að þú verðir bara freaking kúl. Þokkkaaaaliiiiiiiga!

Ljónið.(23.júli-22 ágúst)
Hey, það þýðir ekkert að vera soft skiluru. Kemur bara og lets go all the way, ma'r. Þú verður ekkert smá djammin. Fílaða, úé.

Meyjan.(23. ágúst- 22. sept)
Þú hittir megagellu nirrí bæ, maður, þú'st. Og hún er bara:" Hey, þú commentaðir kúl þarna áðan, jee bojjj!! I praise you, sæti fír.

Vogin.(23.sept-23.okt)
Vá, það liggur vel á þér núna, skvís. Bara any time any place, allt í fíling. Mega chillin and illin, jó. Tha whole week, nó wat æm seyin....!!!

Sporðdrekinn.(23.okt-21.nóv)
Hvað sem á gengur skaltu keep it real. Það er all that matters. Verðum svo bara í speisi í góðum fíling, you and me baby.

Bogmaður.(22.nóv-21.des)
Hvað var málið með þig og gaurinn maður. Ég meina wtf, þú'st, Hristu þetta af þér og komdu í par-tay um helgina. ÞAR verðum við læk ðe men, jú nó!

Steingeit.(22.des-19.jan)
Jó, maður. Megaprops fyrir addið. Við verðum að git down maður. Sem fyrst. PEACE! Æm át.


Hvað segið þið svo við þessu??? Er þetta ekki bara hin fínasta spá???..hahahahaah
Kv Gunna


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband