Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Áramótakveðja....;)

Hæhæ kæru vinir, bloggvinir og aðrir sem kíkja hér inn á síðuna.
Ég ákvað að setjast í ritstólinn og henda hér inn einhverjum línum núna, þar sem ég hef engan tíma í það á morgun.

Ég fékk tuskutremma og þrifnaðaræðiskast í dag þar sem ég ætlaði ekkert að gera á morgun nema að búa til sallöt með snakkinu og henda í eina brauðtertu líka til að narta í um kvöldið og dúlla með sjálfa mig og horfa á Kryddsíld á stöð2. Jú ætli ég sjóði ekki hangikjötið til að hafa á nýársdag úr því það er til.

Ég var eins og hvítur stormsveipur hérna heima það eina sem ég á eftir að gera er að ryksuga, ég ákvað að gera það ekki fyrr en í fyrramalið, því í kvöld vorum við með svona bíókvöld fyrir krakkana hans kallsins míns með popp og kók og ís og horfðum á DVD myndina Mamma mía og þá er ekkert vit í því að ryksuga fyrir svoleiðis kvöld þar sem poppið vill svo oft rata í sófann og á gólfið.
Þannig að ég verð að vakna snemma og ræsa liðið og henda því í sturtu, nú ef þau vakna ekki þá ræsi ég þau með ryksugulátum ég sagði þeim það og ég lofaði þeim því að ég myndi gera það.

Um leið og Kryddsíldin er búin á stöð2 að þá förum við austur á Stokkseyri í matarboð til tengdó.
Eftir það förum við aftur heim en krakkarnir verða eftir hjá afa og ömmu, þar sem við eigum von á fólki til okkar seinna um kvöldið.
Eftir áramótaskaupið að þá förum við uppá Hamarinn (held að það heiti það) sem er einhvers staðar hér í Hafnarfirði og ætlum að horfa á alla ljósadýrðina, förum svo heim til mín aftur og það er aldrei að vita nema að við förum á röltið á milli húsa og hitta fólkið sem við þekkjum.
Ætli ég láti ekki þetta blogg duga í bili.



Ég óska ykkur öllum Gleðilegs árs og farsældar á nýja árinu, vona að þið eigið góð og ljúf áramót.
Ég þakka öllum vinum og bloggvinum fyrir bloggvináttuna og komment á árinu. Þar sem þetta er síðasta bloggfærslan á árinu að þá segi ég...
Skjáumst á nýja árinu.
Hafið það verulega gott og gangið hægt um gleðinar dyr.
Knús og kossar.

Áramótakveðja. Gunna.


Jólin mín...og fl.....;)


Kæru vinir.
Jæja nú eru jólin að baki og komin smá pása frá stórsteikum og kræsingum. Það eina sem er á borðum núna eru kökur, smákökur og nammi..jú eitthvað af ávöxtum. Það er varla að ég hafi list á þessu seddan er svo mikil eftir allt átið síðustu daga.

Jólin voru alveg yndisleg frá upphafi til enda, við og mín fjölskylda vorum öll hér heima á aðfangadagskvöld og ég var með Hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi. Það var sko vel borðað enda voru allir að springa  á eftir. Nú svo eftir allt uppvaskið (uppþvottarvélin sá um megnið af því nema sparistellið) að þá var ráðist á pakkana...hehehe já já eða þannig...þetta voru virkilega fallegar og eigulegar gjafir sem við fengum. Sumt fengum við tvennt af eins og t.d. Mama mía og Brúðguminn, og einn bróðir minn fékk tvö eintök af Ladda 6tugur svo það myndaðist svona skiptimarkaður í nokkrar mínútur  og við skiptum við hann á öðrum Brúðgumanum og Ladda. En ég þarf að skipta á annarri mömmuni, það er nóg að eiga eina mömmu og einn Brúðguma...haahhahaha.. Svo eftir pakkaflóðið að þá var bara slappað af og sjallað og mikið hlegið. Alveg yndislegt kvöld. Nú svo fengu litlu fjórfættlingarnir prinsinn og prinsessan líka pakka og voru mjög ánægð með þá  Tímó prins nuddaði trýninu upp við pakkana eins og þetta væri gæruskinn, bara fyndið að horfa á það uppátæki..hehehe...svo náði hann dótir úr pokanum og fór að leika sér  en það náðist ekki að taka mynd af Perlu prinsessu að leika sér  en sú mynd kemur seinna þegar ég er búin að ná mynd af henni við þá iðju. 

Á jóladag að þá vorum við bara á náttsloppnum fram eftir degi eða þar til að ég fór í kokkastarfið. Við vorum búin að ákveða það að bregða útaf vananum og hafa Lambahrygg á jóladag þar sem við vissum að við myndum fá hangikjöt á annann í jólum. Jújú mín fór að setja hrygginn yfir og búin að kryddann eftir kúnstarinnar reglum og eftir smá tíma fór að finnast ilmandi matarlykt en mér fannst samt eitthvað bogið við þann ilm, svona eins og af reyktu kjöti, en ég hugsaði með mér að það væru kannski einhverjar leyfar af lyktini frá því kvöldið áður. En svo eftir klukkutíma að þá kíki ég á kjötið og mér fannst þetta vera eitthvað svo rautt eitthvað öðruvísi en átti að vera en ég set kjötið aftur í ofninn og var ekkert að spá í þetta. Nú svo kíki ég aftur á kjötið einhverju seinna og þá sé ég að það er BLEIKT og ég bara ..haaa???? fór þá mig að gruna að þetta væri léttreyktur lambahryggur. Minn maður fór í ruslið og náði í umbúðirnar og jú viti menn...þar stóð LÉTTREYKTUR...og ég bara NEiiiiiiii.......og ég er búin að KRYDDANN...AArrrg...svo sprungum við úr hlátri og sögðum...jæja það verður bara að hafa það...hann verður örugglega bara betri..hehehe...og við vorum búin að bjóða frænda hans í mat. Og vorum búin að hlakka svo til að fá FERSKANN lambahrygg. Já það marg borgar sig að LESA SMÁALETRIÐ. Við höfum verið einhvers staðar út á túni þegar við vorum að versla. Það er augljóst. En ég get sagt ykkur það að hryggurinn hann KLÁRAÐIST hann var svo góður...hehehe...Svo eftir að búið vara að ganga frá eftir matinn að þá var bara slappað af. Ég dauð skammast mín að segja frá þessu...en þetta er svo fyndið að það er eiginlega ekki hægt að þegja yfir þessarri sögu.

Á annann í jólum að þá fórum við í tvær veislur, byrjuðum hjá mömmu í hádeginu og fengum hangikjöt og kjúlla með öllu tilheyrandi meðlæti og fl. Vorum öll mætt þar og var æðislegt. Fórum svo kl um 3 til konu hans pabba heitins og fengum meira hangikjöt með öllu tilheyrandi og fl. Já maður var í stöðugu áti í gær, ég sagði við einn bróður minn að ég kæmi hingað pakksödd og færi héðan sprungin. þetta var alveg á við heilann vinnudag má segja frá kl 12 og til kl 8 um kvöldið, 8 klukkutíma át. ÚFF..enda er ég ekkert svöng í dag.
Það er spurning að leggjast í grænmetið næstu daga eða fram að gamlárskvöld þegar næsta stórsteik kemur á borð, og kannski hangikjöt á nýársdag. Og fara svo á melónukúrinn strax 2 janúar  og hreynsa út öll óæskileg efni sem eru búin að safnast hér og þar á líkamanum eftir allt þetta át þannig að maður er orðin afvelta og fer að nálgast það að hræða kettina uppúr hárunum  nei það gengur ekki. Ég ætla að hreyfa mig  meira en ég geri.  Það er allavega ekki hægt að segja að ég hreyfi mig ekkert þar sem ég er ekki á bíl og fer allar mínar ferðir fótgangandi eða með strætó þegar minn maður er út á sjó. Þannig að þetta rennur af mér hægt og rólega eftir áramótin.

En jæja ætli ég láti ekki þessa færslu duga í bili, er búin að vera ansi lengi með hana þar sem rithöfundur var truflaður öðruhvoru á meðan á ritvinnslunni stóð.

Eigið góðan dag og helgi kæru vinir.
Skjáumstum sæta fólk.
Munið að kommenta.
kv Gunna.

P.S. Hún Steinþóra vinkona mín á afmæli í dag

Til hamingju með daginn elsku vinkona, sjáumstum í kvöld mín kæra.Wink


Gleðileg jól.....;)



Vona að þið hafið það sem allra best yfir jólin.
Ég kem svo með blogg fljótlega,
Skjáumstum sæta fólk.
Jólaknús og jólakveðja, Gunna.


Síðustu dagar....;)




Hæhæ kæru vinir.emoticon
Loksins kem ég með eitt stk blogg. SAKNAÐIR ÞÚ MÍN EITTHVAÐ????? Nei örugglega ekki það hafa allir nóg að gera þessa dagana og eru ekkert að kíkja hér við, en nóg er af heimsóknunum en lítið um kvitt. Þannig að ég trúi því ekki að það hafi verið mínir bloggvinir, heldur laumu aðdáendurnir mínir...sem þora ekki að kvitta....allavega ekki ennþá....emoticon haahahah..

Eníhú..núna síðustu dagar hafa verið meira en geðveikir..allavega að minni hálfu þó að hinn parturinn af mér hafi verið meira svona í tjilli (hvernig sem þetta er nú skrifað en skilst vonandi samt) hér heima fyrir ( þá er ég að tala um hinn helminginn, þið stelpur vitið hvað ég er að tala um) að þá er ég búin að vera í þvílíku allra handa kasti skal ég segja ykkur. Og það er búið að versla allt. Allar jólagjafir og jólamat. ( kallinn minn duglegur í því dæmi) Ég er nefnilega þannig að ef ég er búin að ákveða eitthvað og ætla mér að vera búin að gera hlutina fyrir vissann tíma eða daga að þá er ég óstöðvandi, ég geng yfirleitt fram af mér og er gjörsamlega búin á öllu en held samt áfram. Eins og sagt er að þá geng ég á þrjóskunni einni saman, þó ég geti varla hlutinn en geri þá samt en svona er ég bara og það ER EKKI hægt að breyta því. Og ef ég næ ekki að klára fyrir þennann tíma sem ég hef sett mér að þá verð ég ferlega pirruð og geðill. En ég næ samt að halda ró minni, hvernig sem ég fer nú að því. Ég læt það aldrei bitna á öðrum og það sér það heldur enginn. Það er bara svona innbyrðis eitthvað. En ég elska  samt minn mann hann er æðislegastur. OG HANN ER BÚIN AÐ PANTA AÐ FÁ AÐ RYKSUGA....hehehehe
Ég var búin að ákveða það að vera búin að öllu fyrir 19 des en náði ekki alveg að klára fyrr en í gær 20 des, jamm einum degi á eftir áætlun. En minn kall hafði áhyggjur að ég væri að ganga fram af mér og sagði mér að slappa af og vera ekki að þessu, jamm honum fannst ég vera að gera óþarfa hluti...hehehe...en ég náði að klára í gær og er bara sátt við það sko. Það eina sem er eftir  er að setja punktinn yfir iið. Ég hef næstu þrjá daga til að klára það dæmi. Það er hvort eð er hlutir sem ég geri alltaf á gamlársdag eða á aðfangadag, það er að renna yfir gólf og mubblur.

 En minn kall er óskaplega duglegur að fara í búðir og versla, honum þykir æðislega gaman að fara með mér í búðir og versla á mig föt. Hann stingur yfirleitt upp á því sjálfur. Það eru EKKI margir karlmenn sem hafa gaman að þessu.

Svo á morgun (sunnudag)  þá fer minn kall ásamt nágrannanum á efri hæðinni að skreita garðinn þó fyrr hefði verið. Það hefur aldrei verið farið svo seint í það verk eins og núna.
Svo þetta verður bara æðislegt hjá okkur hérna í firðinum.
Börnin hans eru hérna hjá okkur núna yfir helgina en þau fara á mánudaginn aftur norður, og hann fer með þeim og kemur aftur um kvöldið. Vonandi að það verði flogið.

Jæja ætli það sé ekki best að hætta þessu pári mínu og fara að sofa í hausinn á mér. Enda orðin meira en syfjuð og er dauuuuuð þreytt og veit ekkert  um hvað ég er að skrifa lengur.
Skjáumstum sæta fólk.
Munið að kommenta.
Kv Gunna.
 


Smá lestur fyrir öll þessi jólaglögg!!!!

Hæhæ mínir vinir. Ég ætla að setja þessa sögu hér inn, ég bloggaði þessa sömu sögu fyrir jólin í fyrra en á annarri bloggsíðu. Þessi saga fær mann til að hugsa, og eins og sagt er að aldrei er góð saga of oft sögð.

Hér kemur sagan.

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.

Allavega, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.
Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði " þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. " þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin." Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

Ég sagí honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað" Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana."

Hjarta mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði " ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað til ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. " Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo hún gleymi mér aldrei."

" Ég elska mömmu mína og vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni."
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn " en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening? " Allt í lagi sagði strákurinn."

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur.
Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði ´" Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín.

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka." Sko mamma elskar hvíta rós."

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.

Var þetta fjölskylda litla stráksins?

Tveimur dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndina af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann daga í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.

Núna hefur þú 2 kosti:

1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjarta þitt.

Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess að keyra drukkinn.


Ég mátti til með að koma með þetta þar sem er mikið um jólahlaðborð og jólaglögg um þetta leiti. Allir svo glaðir og kátir, en svo eru til dæmi þar sem það er stigið upp í bíl og keyrt af stað og sá eða sú er búin að fá sér BARA eitt glas, en það er einu glasi of mikið.

Ég er búin að ákveða það að koma með þessa sögu fyrir hver jól á meðan bloggsíður mínar lifa.
 
Læt þetta gott heita í bili, bið að heilsa ykkur, kv Gunna


Eftirlýstir og fl.....;)

Hæhæ kæru vinir.

Ég ætla að halda áfram að húmorast....LoL og ákvað að setja þessa skemmtilegu mynd hér inn.

Þetta fer þeim ágætlega þeir yrðu bara góðir í þessari stöðu....LoL hahahahaha....

EKKI SATT???? LoL

EFTIRLÝSTIR!!!!

eftirlystir

Eníhú...minn kall er að koma af sjónum í nótt eða í fyrramálið og stoppar í 2 daga núna í staðin fyrir einn...Wink alltaf gaman að fá aukafrídag..Grin en það er einhver bilun í gangi í vélinni á bátnum. En hvað um það ég ætla að njóta þess að hafa hérna heima í alla þessa klukkutíma.InLove Svo er spurning hvort við förum út að borða annaðkvöld ( sunnudagskvöld) Það er alltaf svo gaman að fara út að borða og borða góðan mat við kertaljós og rómantík....HeartInLoveHeart  Nú svo get ég auðvitað eldað góðan mat (ég er ekkert slæmur kokkur sko....Grin ) og verið með kertaljós og rómantík hér heima...Wink En það kemur allt í ljós á morgun (sunnud) ég ætla ekkert að stressa mig yfir þessu...Grin

En ætli ég láti ekki þetta pár mitt duga í bili.

Skjáumstum sæta fólk.

Munið að kommenta.

Knús á ykkur öll.Kissing

Kv. Gunna.


Eitt lítið blogg.....;)

302pa8hlp7

Hæhæ kæru vinir.

Eitt smá blogg áður en ég fer frá tölvunni.

Ég er búin að setja upp jóla-eldhúsgardínurnar og jólaljós í gluggann og þetta kemur ágætlega út.´Þannig að nú eru jólaljós í öllum rýmum heimilisins eða svo til nánast.

Ég var að draga fram osta og ritz-kex og ætla að hafa það kósý með kertaljós og jólaljós , á nokkra tónlistardiska sem ég keypti mér í Perlunni í síðasta mánuði og á eftir að renna í gegnum þá, var t.d. að taka utan af þeim í dag...ahahah...þvílík spenna yfir þeim. Svo það er komin tími á að gera það núna.

En ég vona að þið hafið það sem best yfir helgina elsku vinir.

Ætla ekki að hafa þetta blogg lengra.

Skjáumstum sæta fólk og munið að halda brosinu og jákvæðninni, lífið er of stutt fyrir annað.

Góða helgi öll sömul.

Knús á ykkur öll.

Munið að kommenta.

LV-lovekv Gunna.


Er þetta djók eða.......??

Hæhæ kæru vinir.

Ég ætla að halda áfram í djókinu með þessa ef djók skal kalla.............já og ekki orð um það meir.

image001

Svo þetta er allt okkur að kenna....já þar höfum við það.

Þið vitið þetta allt saman svo það þarf ekkert að orðlengja þetta eitthvað frekar.

Skjáumstum sæta fólk.

Munið að kommenta.

kv Gunna.


1 des....;)


Hæhæ kæru vinir...


Ég og ein vinkona mín fórum í búðir í dag og spreðuðum peningum hingað og þangað eins og engin kreppa væri, já og ég henti klinki í box sem einn harmonikkugaur sat og spilaði. Já því það vill svo til að það eru líka að koma jól hjá honum og ég sé ekki eftir því að rétta honum smá klink. Hann var svo þakklátur og ég fékk fallegt bros að launum. Ég veit sko hvernig það er að vera fátækur, en í dag get ég sko ekki kvartað.

Eníhú...við stöllur fórum í Ikea settum eitt og annað í innkaupakörfuna og svo ætluðum við að finna eldhúsgardínur en fundum bara stofugardínur..svo ég arkaði til aðstoðarkonu þarna og spurði hvort það væru til eldhúsgardínur??? nei við erum bara með þessar 3 metra langar gardínur en þú getur klippt þær til og notað sem eldhúsgardínur. Og ég bara DÖÖÖÖ......emoticon og sagði nei ég held ekki,mér finnst það nú ekki sniðugt. Þannig að við héldum áfram og borguðum og fórum í ´RL búðina (Rúmfatalagerinn) og fundum gardínur þar. Ég fann æðislegar fallegar jólagardínur fyrir eldhúsið, keypti í metratali og svo kemur í ljós hvort ég þurfi að klippa eitthvað smá. En það er höfuðverkur morgundagsins þar að segja ef ég skelli mér ekki í þetta á eftir þegar ég er búin að blogga.
Og ég keypti auðvitað seríur til að setja í eldhúsgluggann og ætla að bæta við í einu herberginu. Ég er svo mikið jólabarn að ég er óstöðvandi þegar ég byrja. Og ég má helst ekki detta inn í jóladeildina í búðunum.

Ég er búin að vera frekar lengi að skrifa þessa færslu, alltaf eitthvað að trufla.Síminn eða eitthvað, svo litli prinsinn minn hann svaf hérna á stól við hliðina á mér en svo þegar hann vaknaði að þá stökk hann upp á tölvuborðið og setti framlappirnar á axlirnar á mér og þá er það vísbending á að ég á að halda á honum, og hann vildi bara kela og kelaði mikið. Ég er öll út kysst eftir hann, æji hann er svo æðislegur.

Jæja ætla nú að hætta þessu pári mínu og fara að ath með gardínur og ljósin.
Skjáumstum sæta fólk.
Munið að kommenta.
Knús á ykkur öll.
kv Gunna.

                             


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband