Smá lestur fyrir öll þessi jólaglögg!!!!

Hæhæ mínir vinir. Ég ætla að setja þessa sögu hér inn, ég bloggaði þessa sömu sögu fyrir jólin í fyrra en á annarri bloggsíðu. Þessi saga fær mann til að hugsa, og eins og sagt er að aldrei er góð saga of oft sögð.

Hér kemur sagan.

Síðasta dag fyrir jól flýtti ég mér í stórmarkaðinn til að kaupa gjafirnar sem ég komst ekki yfir að kaupa fyrr.

Þegar ég sá allt fólkið þar, byrjaði ég að kvarta í hljóði "þetta á eftir að taka heila eilífð og ég á enn eftir að fara á svo marga staði".

Jólin eru alltaf að verða meira og meira pirrandi með hverju árinu. Ég vildi að ég gæti bara lagst niður og farið að sofa og vaknað svo eftir jólin.

Allavega, ég kom mér í leikfangadeildina og þar fór ég að skoða verðin, hugsandi hvort að börn leiki sér eitthvað með svona dýr leikföng. Eftir smá tíma af leikfangaskoði þá tók ég eftir litlum strák um 5 ára, sem hélt á dúkku upp við brjóstið sitt.
Hann strauk hárið á dúkkunni og virtist svo sorgmæddur. Svo snéri litli strákurinn sér að eldri konu sem var við hliðina á honum "amma, ertu viss um að ég hafi ekki nógu mikla peninga?" Gamla konan svaraði " þú veist að þú átt ekki nóg til að kaupa dúkkuna elskan mín" Svo bað hún hann um að bíða í 5 mínútur eftir sér á meðan hún skoðaði sig um. Hún fór fljótlega.

Litli strákurinn hélt ennþá á dúkkunni í hendinni. Ég labbaði til hans og spurði hann hverjum hann ætlaði að gefa dúkkuna. " þetta er dúkkan sem systir mín elskaði mest og langaði svo mikið í fyrir jólin." Hún var svo viss um að jólasveinninn myndi gefa sér hana.

Ég sagí honum að kannski eigi jólasveinninn eftir að koma með dúkkuna til hennar, og að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. En hann sagði við mig sorgmæddur "Nei jólasveinninn getur ekki gefið henni dúkkuna þar sem hún er núna. Ég verð að gefa mömmu dúkkuna svo hún geti gefið henni hana þegar hún fer þangað" Augun hans voru svo sorgmædd meðan hann sagði þetta.

"Systir mín er farin til þess að vera með Guð. Pabbi segir að mamma sé líka að fara til Guðs mjög fljótlega, og ég hélt að hún gæti farið með dúkkuna fyrir mig og gefið systur minni hana."

Hjarta mitt stoppaði næstum því. Litli strákurinn leit upp til mín og sagði " ég sagði pabba að segja mömmu að fara ekki alveg strax. Ég bað hann um að bíða þangað til ég kæmi heim úr búðinni" Svo sýndi hann mér fallega mynd af honum þar sem hann var hlægjandi. " Ég vil líka að mamma taki þessa mynd með sér svo hún gleymi mér aldrei."

" Ég elska mömmu mína og vildi óska að hún þyrfti ekki að fara, en pabbi segir að hún verði að fara til að vera hjá litlu systur minni."
Svo leit hann aftur á dúkkuna með sorgmæddum augum, mjög hljóðlátur. Ég teigði mig hljóðlega í veskið mitt og tók smá pening upp og sagði við strákinn " en ef við athugum aftur í vasan til að tékka hvort að þú eigir nógan pening? " Allt í lagi sagði strákurinn."

Ég bætti smá af mínum peningum við án þess að hann tæki eftir því og við byrjuðum að telja. Það var nógur peningur fyrir dúkkunni, og meira að segja smá afgangur.
Litli strákurinn sagði "Takk Guð fyrir að gefa mér nógan pening. Svo leit hann á mig og sagði ´" Í gær áður en ég fór að sofa þá bað ég Guð um að vera viss að ég hafi nógan pening til þess að geta keypt dúkkuna handa systur minni. Hann heyrði til mín.

"Mig langaði líka að eiga nógan pening til að kaupa hvíta rós handa mömmu, en ég þorði ekki að biðja Guð um of mikið, en hann gaf mér nóg til að kaupa rósina líka." Sko mamma elskar hvíta rós."

Nokkrum mínútum seinna kom gamla konan og sótti strákinn. Ég kláraði að versla með allt öðru hugarfari ég gat ekki hætt að hugsa um litla strákinn.
Svo mundi ég eftir frétt í blaðinu fyrir 2 dögum síðan "maður keyrði drukkinn og klessti á bíl þar sem ung kona og lítil stelpa voru í. Litla stelpan dó samstundis en mamman var í dái" Fjölskyldan varð að ákveða hvort það ætti að setja hana í öndunarvél eða ekki, af því að unga konan myndi ekki vakna úr dáinu.

Var þetta fjölskylda litla stráksins?

Tveimur dögum eftir að ég hitti litla strákinn, las ég í blaðinu að unga konan hafi dáið. Ég gat ekki hamið mig og fór út í blómabúð og keypti búnt af hvítum rósum og fór upp í líkhús þar sem fólk gat séð konuna og óskað sér í seinasta skipti áður en hún væri jörðuð.
Hún var þarna í kjól, haldandi á fallegri hvítri rós með myndina af litla stráknum og dúkkuna á brjóstinu.

Ég fór grátandi og fannst líf mitt hafa breyst til eilífðar. Ástin sem þessi litli strákur hafði til mömmu sinnar og systur, er enn þann daga í dag, erfitt að ímynda sér. Og í einni svipan tekur drukkinn maður þetta allt frá honum.

Núna hefur þú 2 kosti:

1) Sendu þessi skilaboð til allra sem þú þekkir.
2) Eða hentu þessu og láttu sem þetta hafi ekki snert hjarta þitt.

Ef þú sendir þessi skilaboð, þá kannski hindrar þú einhvern til þess að keyra drukkinn.


Ég mátti til með að koma með þetta þar sem er mikið um jólahlaðborð og jólaglögg um þetta leiti. Allir svo glaðir og kátir, en svo eru til dæmi þar sem það er stigið upp í bíl og keyrt af stað og sá eða sú er búin að fá sér BARA eitt glas, en það er einu glasi of mikið.

Ég er búin að ákveða það að koma með þessa sögu fyrir hver jól á meðan bloggsíður mínar lifa.
 
Læt þetta gott heita í bili, bið að heilsa ykkur, kv Gunna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þessi saga er eitthvað sem á að lesa fyrir öll jól, er alltaf jafn sönn.  Krúttkveðja á þig elskan

Ásdís Sigurðardóttir, 11.12.2008 kl. 11:52

2 Smámynd: Erna

Þetta er átaknleg dæmisaga, sem allir ættu að lesa og hugsa um.

Elsku Gunna mín hafðu það gott um helgina

Stresspúkinn er alltaf annað slagið að banka upp hjá mér En næst þegar hann bankar, þá opna ég ekki fyrir honum

Erna, 13.12.2008 kl. 11:22

3 Smámynd: Sigrún Óskars

ég bara táraðist þegar ég las þessa sögu - samt hef ég lesið hana áður.

hafðu það gott - knús frá mér

Sigrún Óskars, 20.12.2008 kl. 20:45

4 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Já ég tárast alltaf þegar ég les þessa sögu, hún er bæði sorgleg og falleg saga.

Ég þakka ykkur öllum fyrir innlit og kvitt, þið eruð æðislegar.

Knús knús.

kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 21.12.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband