Þú verður að lesa þetta, þú gætir bjargað mannslífi.

Hæhæ, ég fékk þetta sent og ætla að setja þetta hér inn og leyfa ykkur að njóta þess líka.

Gefðu þér smá stund til þess að lesa þetta:

Bara á eina stofnun - héraðssjúkrahúsið í Vestfold í Noregi - koma að
meðaltali 5 sjúklingar á dag með bráða heilablæðingu.

Heilablæðing ( líka nefnd Slag eða Heilablóðfall ) er í reynd þriðja
helsta dánarorsök í Noregi og fellir fólk á öllum aldri - þótt aldraðir séu þar í
meirihluta - Taktu nú eftir:



Það var veisla og Inga hrasaði og datt. Hún fullvissaði alla um, að allt
væri í lagi með sig ( þau buðu henni að hringja í lækni ) hún hefði bara hrasað um stein af
því að hún væri í nýjum skóm. Henni var hjálpað við að laga sig til og var færður matur
á nýjan disk ? og þrátt fyrir að hún virtist svolítið óstyrk, hélt Inga áfram að skemmta
sér það sem eftir var kvöldsins.
Maðurinn hennar hringdi seinna og sagði frá því að Inga hefði verið
flutt á spítalann og kl 6:00 um morguninn hefði hún verið dáin. Hún hafði fengið
heilablæðingu í veislunni.
Hefði fólkið vitað hvernig maður getur þekkt einkenni heilablæðingar,
væri Inga mögulega enn á lífi.....

Það tekur bara fáeinar mínútur að lesa þetta:

Taugalæknir fullyrðir að fái hann sjúkling með heilablæðingu til meðferðar innan þriggja tíma
geti hann afmáð allan skaða af völdum áfallsins ... Að fullu og öllu !

Að hans sögn, felst lausn vandans í því að fólk geti borið kennsl á einkennin, fengið greiningu
og komið sjúklingnum undir viðeigandi læknishendi innan þriggja tíma.

Að bera kennsl á Heilablæðingu (Slag)

-Nú segja læknar að allir geti lært að bera kennsl á heilablæðingu með því að
beita þremur einföldum ráðum:
1. * Biðja manneskjuna að HLÆJA .

2. * Biðja manneskjuna að LYFTA BÁÐUM HANDLEGGJUM

3. * Biðja manneskjuna að SEGJA EINA EINFALDA SETNINGU
(sem er í samhengi) ( t.d. ...Sólin skín í dag).

Ef viðkomandi á í erfiðleikum með eitthvert þessara atriða -
hringið þá strax í neyðarnúmerið 112 og lýsið einkennunum.

Hjartasérfræðingur segir að ef allir sem fá þennan tölvupóst, senda hann áfram á 10 aðra,
getir þú að minnsta kosti reiknað með því að einu mannslífi verði bjargað.

LÁTTU EKKI ÞITT EFTIR LIGGJA - DEILDU ÞESSU MEÐ EINS MÖRGUM OG ÞÚ GETUR

Er eitthvað til í þessu??? já ég hef alveg trú á því.
Skjáumst kv Gunna

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Þetta þurfa allir að vita, takk fyrir þetta Gunna.

Ég vona að nú verði ég ekki í tíma og ótíma að biðja fólk um að lyfta upp höndunum og hlæja, maður getur nú tekið hlutina fullalvarlega

Erna, 14.8.2008 kl. 18:31

2 Smámynd: Aprílrós

Já nú verður maður bara í þvi að biðja fólk að hlæja og lyfta höndum. ;)

Aprílrós, 14.8.2008 kl. 19:09

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Var reyndar búin að sjá þetta en góð vísa er aldrei of oft kveðin.  Velkomin í hópinn.

Ásdís Sigurðardóttir, 14.8.2008 kl. 22:25

4 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Takk fyrir innlitinn kæru vinir og kommentin og takk takk Ásdís...

Knús og klemm á ykkur öll... kv. Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 14.8.2008 kl. 22:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband