Bull-blogg dagsins....;)



HALLÓ...kæru vinir..
Hvað segist í þessu hráslagalega-veðri sem er í dag..?? Og er búið að vera undan farna daga.
Já ég segi bara að í svona veðri verður maður frekar latur og tómur eitthvað.Maður nennir ekki einu sinni að blogga, þá er nú mikið sagt.
En ég verð að gera eitthvað í því dæmi, því ekki get ég endalaust verið með afmælisbloggið í gangi.. neiiii... það gengur ekki sko.

En núna stend ég á gati og veit bara ekkert hvað ég á að blogga um.. hmmmm.....um hvað á ég að bulla núna?? Jú bíddu, nú veit ég.. ég ætla að ná í  eina mynd sem fylgdi frétt á vísir.is í gær.

Sko hér er hún...

 

Já ég segi bara, það sem fólki dettur í hug. Og óhætt að segja að það sé engin skortur á hugmyndafluginu þarna.
En það er eins gott að lenda ekki i aftanákeyrslu vegna þess að athyglin beindist að  gúmmi-typpi sem leikur lausum hala á götum borgarinnar, það er frekar neiðarleg afsökun finnst mér.
Það yrði mikið nær að segjast (eins og í mínu tilfelli þar sem ég er kvk) hafa séð flottann og ómótstæðilegan karlmann á labbi á gangstéttinni.
Miklu betri afsökun það.. heheeh...
En mér skilst að gaurinn sem á bílinn sé búin að taka þetta niður, svo það er engin hætta á ferð vegna þessa.

En nú veit ég ekki hvað ég á að bulla meira, ætli það sé ekki komið nóg af því í bili. Fólk nennir ekki endalaust að lesa um eitthvað bull.

Svo, skjáumst seinna sæta fólk, vona að ég hafi ekki hneykslað ykkur um of með þessu bulli mínu. Eigið góðan dag þrátt fyrir veðrið.

Kv. Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband