Ekki láta þetta framhjá þér fara....;)

 

 prod_464_11317

Hæhæ mínir kæru vinir, ég held áfram að grufla í mínum gömlu hirslum og reyna að finna eitthvað bitastætt til að henda hingað inn, og ég fann þetta, en þetta er brandari...;) svo það fari ekki á milli mála, veit til þess að þetta hafi valdið misskilning....;) 




Ekki láta þetta framhjá þér fara....;D
Á að leyfa konum að keyra bíla svona yfirleitt..??
 
Þegar ég (Bjarni) var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til
hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.
Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á
fullu að sminka sig með
meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogann á stýrinu.
Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var
bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein
og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.
Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna
sem  ég hélt á í vinstri hendinni.
Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum
sem ég stýrði með hnjánum, datt
gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli
fótanna.
Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og
tvíburana tvo.
Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún
stórt gat á sparijakkann,
og ég missti af mikilvægu símtali!
 
Hvað er að þessum helv........ kellingum?
 
Ég bara varð að koma með þetta, þessi er sá sterkasti sem ég hef heyrt lengi...hahahaha;D Commentið svo hvernig ykkur fannst þessi..
Andres ÖndKv. Gunna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband