Smá blogg....;)


Kæru vinir.

Ég er með þessu bloggi mínu að láta vita af mér. emoticon Það er búið að rigna yfir mig tölvupóstar hvort ég sé á lífi eða erlendis eða hvað...emoticon  Mín hefur greinilega verið SAKNAÐ...en nei nei ég er bara búin að hafa það ógó gott hér heima,emoticon  kallinn kom af sjónum á fimmtudaginn og er í fríi núna.emoticon  En svona smá brot af því hvað á daga mína hafa drifið....að þá á föstudaginn að þá kúrðum við bara uppí sófa og góndum á imbann...á laugardaginn fórum við upp í Perlu og ætluðum BARA að skoða úrvalið af DVD og CD diskum...eeeeen neiiii....við fórum út með troðfullann poka, já við keyptum fyrir 25.000 kr takk fyrir.emoticon  Svo var ég og ein vinkona mín búnar að tala um að hittast um kvöldið en af vissum ástæðum að þá gat ég ekki farið. EEEEn...svo seinna um kvöldið að þá fylltist allt af óvæntum gestum hjá mér jammm það komu tvær vinkonur mínar og vinir... þannig að ég varð að fara úr náttfötum í eitthvað annað og betra og það var æðislega gaman hjá okkur, mikið skrafað og hlegið.emoticon emoticon  Nú svo á sunnudaginn var ég frekar framlág bara dauð-þreytt eftir nóttina.emoticon  Gerði bara ekki neitt. Þannig var mánudagurinn líka hreint út sagt ein leti. Svo í dag er búið að vera nokkuð að gera, fékk gesti og svo kom maður frá símanum þar sem ég var að skipta út lyklinum og fá HDMI lykil. Nú og svo var ég með gesti í mat í kvöld eldaði góða steik sem breggst aldrei hjá mér emoticon  þó ég segi sjálf frá.emoticon hehehe....smá sjálfsálit í gangi hérna..hehe..
En ætli ég láti þetta ekki duga í bili, þið vitið þá allavega að ég er á lífi og á landinu.
Skjáumstum sæta fólk. Munið að kommenta.

Kv Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Gott að heyra frá þér stelpa. Auðvitað áttu að nýta hverja mínútu í kallinn, ekki spurning.  Farðu vel með þig og njóttu lífsins

Ásdís Sigurðardóttir, 11.11.2008 kl. 23:17

2 Smámynd: Aprílrós

Já njota sín bara. Gaman að fá óvænta gesti sko. en hvað er þessi HDMI lykill *

?.

Aprílrós, 11.11.2008 kl. 23:36

3 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Ásdís....já ég er svo sannalega búin að nýta hverrar mínútu....

Dóra... já segðu, loksins...ég er alveg sammála sko...

Guðrún....HDMI-lykillinn er háskerpu-lykill fyrir háskerpu sjónvarp. það er að vísu ennþá bara fáar stöðvar sendar út í háskerpu....en þetta kemur.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 12.11.2008 kl. 00:03

4 Smámynd: Brynja skordal

Gott að heyra frá þér og þú hafir haft það notalegt með bóndanum þínum svona á að hafa það kósí bara með góðu fólki og gleyma stað og stund hafðu það ljúft Elskuleg

Brynja skordal, 12.11.2008 kl. 14:23

5 Smámynd: Sigrún Óskars

skemmtileg og jákvæð færsla frá þér; gleði, gestir, góður matur og  gaman með kallinum.   (eintóm G hjá Guðrúnu)

Sigrún Óskars, 12.11.2008 kl. 17:45

6 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Já stelpur þessir dagar eru búnir að vera æðislegir....

Takk allar fyrir innlit og kvitt...þið eruð æðislegastar....ALLAR...

knús og klemm...

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 12.11.2008 kl. 20:27

7 Smámynd: Erna

Bara fjör hjá minni enda ekki við öðru að búast þagar þú átt í hlut Gunna mín  Vona að þessi helgi verði í svipuðum dúr hjá þér vinkona  Ég verð að vinna þessa helgina     Helgarknús til þín Gunna mín

Erna, 14.11.2008 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband