Þá er það prinsinn.....;))

Hæhæ kæru vinir...enn eitt sem ég var að ná í af gamla blogginu....Grin

Og þar sem ég kom með miðlungssteiktu Dramadrottninguna í gær að þá var nú ekki annað hægt en að koma með hverskonar prinsum eða froskum ég fell fyrir...LoL

Fellur fyrir frinsum (froskum)

Guðrún tók Dramadrottningar könnunina og fékk þessa niðurstöðu


Guðrún!
Þú fellur fyrir froskum.
Sé karlkynið flokkað í prinsa, froska, proska og frinsa leikur enginn vafi á hvaða manngerð/dýrategund þú fellur fyrir. Þú laðast að froskum eins og segull að stáli, fluga að mykjuhaug, minniháttar stjarna að ljósmyndara Séð og heyrt. (Hvers vegna að segja hlutina einu sinni þegar hægt er að segja þá þrisvar).

Froskar sýna sjaldan rómantíska tilhneigð og geta átt það til að vera ansi óhugulsamir. Láttu þér ekki bregða þótt froskurinn gleymi afmælisdeginum þínum, brúðkaupsdeginum eða jólagjöfinni. Þótt þú gengir með post-it miða á enninu sem á stæði "ég vildi að froskurinn minn myndi koma mér á óvart og kaupa handa mér blómvönd" stæði blómavasinn tómur á stofuborðinu um ókomna tíð.

Þeir sem hyggja á samband við frosk þrátt fyrir það geta endanlega kvatt sjónvarpsfjarstýringuna. Froskar deila henni ekki með neinum. Búðu þig undir löng kvöld yfir íþróttum og Jean-Claude van Damme. Búðu þig einnig undir dimm kvöld því ekki láta þig dreyma um að froskur skipti um ljósaperu.

Finnist þér skemmtilegt að tína skítuga sokka eftir aðra upp af gólfinu átt þú sannarlega samleið með frosknum. Þyki þér það hins vegar ekki hápunktur tilverunnar og þú gerist svo djörf að biðja froskinn að hirða sjálfan upp eftir sig sokkana máttu eiga von á að hann hækki í iPodinum sínum og láti sem hann heyri ekki í þér.

Fellur þú fyrir prinsum eða froskum?

Endilega taktu þátt og leyfðu mér að heyra.

Skjáumstum sæta fólk.

Kv Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ja, stelpa. Þetta verð ég að kanna, sniðugt.

Ásdís Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband