Góð saga...;)

0002

NAGLASAGA

Það var einu sinni lítill drengur sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið.

Næstu vikurnar lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og nöglunum fjölgaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum frá því sem lagði nú til að drengurinn drægi út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn leiddi son sinn að grindverkinu og sagði: "Þú hefur staðið þig með prýði en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg eins og naglarnir. Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör." Faðirinn hélt áfram: "Vinir þínir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér. Sýndu hversu mikils þú metur þá."

Drengurinn tók þegar ráðleggingum föður síns og sendi til allra vina sinna eftirfarandi orðsendingu: "Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Viltu fyrirgefa mér ef ég hef skilið eftir göt á 
grindverkinu                                þínu."                                                                                                     

Eigið góða helgi og hafið það gott kæru vinir.

Skjáumstum.

kv Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Þessi stendur fyrir sínu . Eigðu góða helgi .;)

Aprílrós, 20.9.2008 kl. 17:36

2 Smámynd: Helga Dóra

Finnst þetta alltaf jafn krúttleg saga.....

Helga Dóra, 21.9.2008 kl. 00:21

3 Smámynd: Erna

Vá... hvað þetta er falleg saga. Ég hef ekki heyrt hana áður, takk Gunna mín, fyrir fallegan boðskap

Erna, 21.9.2008 kl. 00:55

4 Smámynd: Ragnheiður

Þessi saga er hrein snilld..ofsalega falleg og lærdómsrík

Ragnheiður , 21.9.2008 kl. 17:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband