Svo eitthvað tóm.....;(

12

Hæhæ kæru vinir.

Ég er svo andlaus og tóm eitthvað í dag Frown Ætli það sé veðrið sem hefur þessi áhrif á mig?? hmmm....já ég ætla að kenna veðrinu um þetta allt saman.Woundering Þannig að til að gera eitthvað að þá ætla ég að ráðast í heimilisverkin og henda mér svo upp í sófa með teppi og kettina tvo, og glápa bara á imbann og gef svo bara frat í veðrið.

En það versta við það að svona á þessi veðurtíð að vera alla vikuna....Angry*HNUFF* En ég finn eitthvað spennó að gera í vikunni, ég á t.d. tvær myndir sem bíða alltaf eftir því að ég byrji á að sauma sig...Blush Önnur er landslagsmynd og hin er dýramynd. Já ætli ég taki ekki bara saumadótið fram og fari að byrja á þessu.

En hafið það gott elskurnar.

Skjáumstum sæta fólk.

disney088kv Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erna

Já já Gunna mín, kenndu bara veðrinu um  þegar þú minntist á saumaskap þá mynntir þú mig á... hummm ókláraðan jóladúk sem ég verð að fara taka upp. Svo hann þurfi ekki að bíða þriðju jólanna að verða kláraður  Er að fara að leggja mig núna en ég þarf að mæta á næturvakt í kvöld  Vona að veðrið verði til friðs hjá ykkur. Góðar útsaumsstundir vinkona

Erna, 16.9.2008 kl. 16:27

2 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Það er gott að vita að ég er ekki ein um þennann trassaskap varðandi útsauminn... hehehe...En já veðrið er bara orðið kolklikkað og á eftir að versna, það kvín í öllu hérna allavega.. Takk fyrir innlitið og kvittið.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 16.9.2008 kl. 19:59

3 Smámynd: Sigrún Óskars

Í þessu veðri er bara hægt að liggja í sófanum og hafa það kósý. eða sauma

Ég er með eina útsaumsmynd sem ég mundi eftir núna - flott mynd, sem ég þarf að telja út. Var alveg búin að gleyma henni - þvílíkur trassaskapur.

Láttu fara vel um þig í rokinu og passaðu kisurnar- verða þær ekki hræddar?

Sigrún Óskars, 16.9.2008 kl. 22:02

4 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Takk sömuleiðs Sigrún mín, já er búin að hafa það kósý upp í sófa í kvöld...með kisulórurnar hjá mér, Þeim er ekkert vel við þetta veður þessum elskum...takk fyrir innlit og kvitt.  Góða nótt stelpur mínar.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 17.9.2008 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband