Við konur ættum að vera ógó.....;)

 

unknown%2814%291515151515Við konur ættum að vera ógó ánægðar yfir þessu...


Konur yfir fertugt - Andy Rooney í 60 mínútum - tær snilld...

Eftir því sem ég eldist, met ég mest konur yfir fertugt og her eru nokkrar

ástæður fyrir því:

Kona yfir fertugt mun ekki vekja þig um miðja nótt og spyrja þig "hvað ertu

að hugsa?"

Henni gæti ekki verið meira sama.

Ef kona yfir fertugt vill ekki horfa á leikinn með þér vælir hún ekki yfir

því.

Hún gerir eitthvað sem hana langar til og yfirleitt er það áhugaverðara en

leikurinn.

Konur yfir 40 eru virðulegar í framkomu. Þær fara sjaldan í öskurkeppni við

þig í óperunni eða á fínum veitingastað.

Nema þú eigir það skilið, þá hika þær ekki við að skjóta þig ef þær halda að

þær komist upp með það.

Eldri konur eru örlátar á hrós, oft óverðskuldað. Þær vita hvað það er að

vera ekki metin að verðleikum.

Konur verða skyggnar með aldrinum. Þú þarft aldrei að viðurkenna misbresti

þína fyrir þeim.

Þegar þú getur litið framhjá einni eða tveimur hrukkum er kona yfir 40

langtum kynþokkafyllri en yngri kynsystur hennar.

Eldri konur eru hreinar og beinar. Þær segja þér eins og skot að þú sért

asni ef þú hagar þér sem slíkur.

Þú þarft aldrei að fara í grafgötur með hvar þú hefur þær.

Já, við dásömum konur yfir fertugt af mörgum ástæðum.

Því miður er það ekki gagnkvæmt. Því fyrir hverja glæsilega, smarta og vel

greidda konu yfir fertugt, er sköllóttur,

vambmikill forngripur í gulum buxum gerandi sig að fífli fyrir 22gja ára

gengilbeinu. Konur, ég biðst afsökunar.

Til allra þeirra karla sem segja; "Afhverju að kaupa kúna þegar þú getur

fengið mjólkina frítt?" þá eru hér nýjar upplýsingar:

Nú á tímum eru 80% kvenna á móti giftingum.

Hvers vegna?

Vegna þess að konur gera sér grein fyrir að það borgar sig ekki að kaupa

heilt svín þótt þær langi í smá pylsu!

Andy Rooney

Já hann Andy liggur sko ekki á sínum skoðunum...LoL
Endilega commentið og ekki gleyma að kvitta í gestabókina...
Skjáumst kv Gunna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gulli litli

Gulli litli, 6.9.2008 kl. 08:42

2 Smámynd: Aprílrós

innlits kvitt ;)

Aprílrós, 7.9.2008 kl. 04:16

3 Smámynd: Sigrún Óskars

skemmtilegt þetta

Sigrún Óskars, 9.9.2008 kl. 08:32

4 Smámynd: Erna

Gunna mín ertu í bloggpásu? Það gengur ekki því ég er búinn að klukka þig og ekki svíkjast undan, ég verð að vita eitthvað um þig . Vonandi hefur þú það gott vinkona .....Knús og góða nótt

Erna, 11.9.2008 kl. 02:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband