Áfram Ísland.....;)



Hæhæ kæru vinir..
Ég er ekkert smá stolt af strákunum okkar...þetta var MAGNAÐUR leikur frá upphafi til enda..þeir voru og eru stórkostlegir. Eftir að leikurinn var búin að ég gjörsamlega táraðist, og sjá hvernig þeim leið á eftir í eintómri sæluvímu og gleðitárum. Bara glæsilegt, og mín ætlar sko að horfa á leikinn á sunnudagsmorgunin...og sjá þá taka GULLIÐ. 
Ég hef svo mikla trú á þeim að það hálfa væri nóg. HVER hefur það ekki??? nei ég bara spyr...
Ég get sagt ykkur það að í hvert skipti sem Ísland skoraði að þá  sló ég alltaf höndunum svo fast, svona Yeeessssssss-klapp og svo Hi5 við kallinn að ég var orðin eldrauð á höndunum og var farin að verkja..hehehe en alveg þess virði samt. Bara gaman af þessu.

En svo þegar sigurinn var í höfn, að þá spratt þetta í gegnum heilabúið á mér.

Erum búnir að ná í silfrið
sem við náðum með höndum tveim.
Ætlum okkur að ná í gullið
og koma með það um'hálsinn heim.

Jamm þetta er svo sem ekkert sérstakt, bara svona upp á djókið sko..hehehehe...

Skelli hérna inn skemmtilegri mynd af Forsetahjónunum...


Svoooo sææææætt eitthvað...hehehe..

En nú ætla ég að hætta þessu pári í bili, enda er heilabúið ekkert að gera sig núna..þar sem hann er undir áhrifum sæluvímunar og ekkert annað kemst að.
En skjáumstum sæta fólk og munið að kommenta.
og svo bara ÁFRAM ÍSLAND!!!!!

Kv Gunna.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aprílrós

Við eigum bestu strákana. ;)

Aprílrós, 23.8.2008 kl. 00:15

2 Smámynd: Erna

Þetta er algjörlega dásamlegt, ég bóksaflega hágrét af gleði, dóttir mín kom heim og mætti mér í eldhúsinu að leik loknum, en hún hafði ekki séð leikinn og þegar hún sá mig með tárin í augunum, spurði hún:Töpuðum við... nei við uuunnum gólaði ég í sigurvímunni eins og vitskert manneskja, hún starði á mig og spurði svo, af hverju ertu þá að skæla  Henni fannst nú eðlilegra að gráta yfir tapi heldur enn sigri. Góða skemmtun í í kvöld Gunna mín og farðu nú ekki seint að sofa, Þú verður að geta vaknað til að sjá leikinn í fyrramálið  Sjálf verð ég bara að vinna í kvöld.... ÁFRAM ÍSLAND.

Erna, 23.8.2008 kl. 10:52

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég grét líka af gleði, ég græt mun oftar af gleði en sorg.  Þeir eru bara yndislegir þessir strákar og mér finnst þeir í raun búnir að vinna, samt langar mig til að þeir fái gullið, það væri svo gaman fyrir þá og þeira eiga það svo skilið.  Hafðu að sem best mín kæra Bouncing Hearts  Bouncy 2 Bouncing Hearts 

Ásdís Sigurðardóttir, 23.8.2008 kl. 16:21

4 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Ó já stelpur..ég þarf ekki annað en að hugsa til þess að þeir eru búnir að ná silfrinu að táraflóðgáttinn opnast hreinlega og flæðir bara út um allt.. Í mínum augum eru þeir sigurvegarar..en þeir eiga GULLIÐ svo sannarlega skilið, og það yrði frábært fyrir þá.

En eigið góðan dag stelpur mínar og takk fyrir innlit og komment. Knús og klemm á ykkur allar. kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 23.8.2008 kl. 16:31

5 Smámynd: Gulli litli

Strákarnir okkar..

Gulli litli, 23.8.2008 kl. 17:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband