Sólarlandaferð....;)

Hæhæ..kæru vinir...
Í tilefni af sólarleysinu að þá fannst mér rétt að koma með einn góðan um sólarlandaferð.




Sólarlandaferð....;)

Þegar hráslagalegt hafði verið um hríð,
ákváðu hjón ein að flýja vetur konung í viku
og pöntuðu sér ferð suður í höf.
Þannig atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar
en áætlað var en eiginmaðurinn flaug á undan..+

Þegar eiginmaðurinn er kominn á
hótelið rífur hann upp ferðatölvuna
og skrifar strax bréf til konu sinnar.
Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði einn staf í
heimilisfanginu og lenti bréfið hjá ekkju einni
sem nýbúin var að jarðsetja sinn heittelskaða.
Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir athöfnina,
var í þann mund að líta eftir samúðakveðjum.

Þegar bréfið barst..

Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði
fyrir framan tölvuna og þetta stóð ritað yfir skjáinn:

Til:Konunnar sem varð eftir
Frá:Manninum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað

Elskan,

Er komin heill á húfi.
Er búin að kynna mér allar aðstæður
og gera allt klárt fyrir komu þína á morgun.
Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með óþreyju.

Ástarkveðjur,

Þinn eiginmaður.

P.S Fjandi heitt hérna niðurfrá.

Hahahaha.... það er eins gott að ritskoða áður en það er sent svo e-mail-ið fari á réttan stað,
Skjáumstum sæta fólk.
Kv. Gunna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marta Gunnarsdóttir

Sæl, Þessi finnst mér góður en ég er ekki viss um að ekkjur fíli hann í botn.

Marta Gunnarsdóttir, 13.7.2008 kl. 18:49

2 Smámynd: Sigrún Óskars

Góður þessi

Sigrún Óskars, 13.7.2008 kl. 19:01

3 Smámynd: Erna

Fyndin að venju Gunna mín, segðu svo að ég komenti ekki. Get ekki sent broskalla úr þessari tölvu. Vona að mín fari að komast í lag. Kveðja inn í nýja viku.

Erna, 13.7.2008 kl. 20:12

4 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

já hann er tær snilld þessi þakka ykkur fyrir innlit og komment...knús og klemm á ykkur.. kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 14.7.2008 kl. 12:04

5 Smámynd: Aprílrós

Góður. Hvar náið þið í þessa gulu karla ?

Kveðja Guðrún Ing

Aprílrós, 15.7.2008 kl. 00:37

6 Smámynd: Guðrún Ágústa Einarsdóttir

Guðrún.....gulu kallaranir eru  í athugasemdum þar sem þú  kommentar, við hliðna á ABC og Púkanum....  hann ætti ekki að fara framhjá þér..kv Gunna.

Guðrún Ágústa Einarsdóttir, 15.7.2008 kl. 11:05

7 Smámynd: Erna

Hæ það er ekki hægt að gera þessa broskalla í öllum tölvum, ég er núna í lánstölvu, MacBook og get ekki gert neina broskalla. Eigðu góðan dag Gunna mín.

Erna, 15.7.2008 kl. 11:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband