Færsluflokkur: Bloggar
Hátíð.....;)
21.6.2008 | 21:28
10 daga Gospelhátíð hér í Hafnarfirði.
Eða frá 20-29 Júni.
100 ára afmæli Hafnarfjarðar og 20 ára afmæli ABC barnahjálp.
Hæhæ mínir kæru vinir.
Já það eru endalausir tónleika hér í hf. Og á þessari hátíð að þá koma ýmsir listamenn og þenja á sér raddböndin til að skemmta öðrum...
eins og t.d. Ragnar Bjarnason, Páll Rósinkrans, Friðrik Ómar, Regína Ósk og Björgvin Halldórs og fl og fl. Og eru tónleikarnir haldnir hér á Viðistaðartúni og eitthvað á Thorsplani og fl stöðum.
Í gærkvöldi voru roknatónleikar til styrktar abc barnahjálp, og ég þurfti sko ekki að hafa neina tónlist á í mínum græjum. Og ég þarf sko ekki að fara á tónleikana þar sem ég get bara verið hér út í garði og hlustað á þá þar, ógó næææææææs... í sól og sumaryl.
Svo það er nóg um að vera hér í firðinum.
Kallinn er komin í sumarfrí fyrr en áætlað var, þar sem báturinn var með bilaða vél. Já hann kom heim seint í gærkvöldi.
Sonur minn og tengdó komu að borða í gærkvöldi, ég bauð þeim í mat,´líka að sonur minn átti afmæli í gær, og það var æðislegt og maturinn æðislegur
...nammmmmmi... og þar sem það var afgangur að þá ætla ég að gera pottrétt úr rest..
í kvöld.
En þar sem það er ekkert bloggveður að þá ætla ég að hætta í bili og skella mér út í góða veðrið.
Blogga kannski aftur í kvöld, fer eftir veðri, vindi og aðstæðum.
Skjáumstum sæta fólk. Og hafið það sem best í dag.
Kv. Gunna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Gærdagurinn...;)
18.6.2008 | 23:56
Hæhæ kæru vinir, bloggvinir og aðrir.
Ég bloggaði ekkert í gærkvöldi enda var það bara kannski að ég kæmi með blogg.
Ég fór ekkert að deginum, enda var þetta nánast hér við húsið hjá mér, já skrúðgangan gekk hér framhjá líka. En það hefði samt verið gaman að kíkja á eitthvað en sá að minn kall var ekki að nenna neinu frekar en vanalega
Ég var svo sem ekkert að spurja hann að því hvort hann langaði ekki að kíkja eitthvað með mér, nei ég lét það vera og mun aldrei spurja hann í framtíðinni að þeirri spurningu. Búin að gefast upp á því. Þannig er það bara. Svo fór hann á sjóinn kl 8 um kvöldið.
Svo af einhverjum ástæðum að þá var breyting á skemmtanahaldinu um kvöldið, það var fært á Thorsplanið. Heyrði að sumir voru svekktir því Víðistaðartúnið hentar betur fyrir allan fjöldann en svona er þetta bara.
En ég fór á Thorsplanið hér í firðinum og mætti á svæðið akkúrat þegar Páll Óskar var að byrja að syngja. Hann var geggjaður. Svo komu Laddi og co og var tekið brot af því besta úr Laddi 6tugur en ég sá það aldrei, svo það var gaman að fá að sjá þetta þótt það væri bara brot, núna langar mig að sjá það allt.
Svo um kl hálf ellefu að þá fór mín á röltið heim aftur, enda ekkert gaman að vera svona einn á svona hátíð. Þekkti ekki hræðu þarna, enda er ég ekkert héðan. Jú ég hitti á einn frænda minn en búið. Ég var reyndar að spá í að fá mér kaffibolla á einhverju kaffihúsinu en OMG það var troðið allstaðar svo ég fór bara.
Þannig að þetta var leiðinlegasta 17 júni sem ég hef upplifað ever..ég saknaði sko borgarinnar núna, ef ég ætti heima þar ennþá að þá hefði þetta verið allt öðruvísi. Þar hefði ég hitt fólk sem ég þekki og jafnvel hefði fólk kíkt á mig eins og það hefur verið undan farin ár. Þar hefði ég ekki látið einhvern karlpung stoppa mig af, óó nei. Ég hefði þá bara skilið hann eftir heima, í sinni uppáhalds iðju og stellingu. Sem er límdur við stólinn með glirnurnar á tölvuskjánum og fingur á músinni og eyrnartólin í eyrunum svo hann heyri eitthvað í tölvunni þar sem hann er ekki með hátalara.
En ætli ég láti þetta leiðindarblogg ekki duga í bili, það var og er ekki ætlunin að kvelja ykkur með einhverju leiðindarrausi.
Gæti sko alveg komið með eitt slíkt blogg, en nei ég geri það ekki. Væri samt fínt að fá smá útrás..En æji ég veit ekki, svona ykkar vegna ...sko....
En skjáumstum sæta fólk.
kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hæhó.....;)
17.6.2008 | 11:55
Hæhó jiiiiibíjey og jiiiiibíííjey.....
Það er komin 17 júní..
Mínir kæru bloggvinir og aðrir..
Gleðilegan Þjóðhátíðardag.
Ég vona að þið eigið góðan dag í dag.
Blogga kannski aftur í kvöld.
Kv. Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
VIÐVÖRUN!!!!!!!
9.6.2008 | 10:28
Þetta er útaf barnaperra á MSN sem addar stelpum og berar sig svo í webba og svoldið meira en það!!!!!
MSN addressan hjá honum er:: xjr1300@hotmail.com .. Hann kallar sig mit_labrador á msn.
Ég vildi bara vara ÞIG við honum!!
SEND ÞÚ ÞETTA ÁFRAM, til allra sem
þú þekkir, hvort sem það sé systir þín eða vinkona og vondandi mun hún sjá
sér fært í því að senda þetta til
allra sem hann þekkir!!
ÞAÐ ÞARF AÐ VARA STELPURNAR VIÐ HONUM!!!!
Ég fékk þetta sent á msn og vildi koma því áfram til að vara fólk við.
Þetta er hreinn horbjóður..
kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góð pæling...;)
5.6.2008 | 22:07
Þetta fær mann svo sannalega til að hugsa og pæla.
Gríptu tækifærið.
Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír:
"þetta er engin venjulegur pakki." Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru.
Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8eða 9 árum síðan.
Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund. Eða.... ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkann hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfarastofuna, konan hans var nýlátin.
Hann snéri sér að mér og sagði: "það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund." Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu. Núna les ég meira og þríf minna. Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu. Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni. Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina ef mig langar til þess. Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til. Orðin "einhverntímann" og "einhverndaginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá, hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur engin vitað.Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini. Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn. Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf.....bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa....."einhverntímann." Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess að ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau. Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar. Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstakur dagur. Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök. Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér þykir líka vænt um. Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við sjálfa þig að þú munir "senda þetta við tækifæri" mundu að "einhverndaginn" er langt í burtu......eða kemur kannski aldrei.......
Ég náði í þetta af gamla blogginu mínu og ákvað að setja það hér inn. Það er svo mikið til í þessari sögu og maður ætti að taka hana alvarlega og pæla í henni. Ég pældi töluvert í henni og það má segja að ég lifi fyrir daginn í dag eins og alkarnir gera, þó ég sé engin alki.
Þú lifðir daginn í gær og hann tilheyrir fortíðinni þar sem hann er liðinn. Þú átt daginn í dag og farðu vel með hann og gerðu það sem þig langar. Þú átt ekki daginn á morgun því hann er ekki kominn og tilheyrir framtíðinni, og veist ekkert hvort hann kemur.
Ég þarf svo sem ekkert að bollaleggja þetta meir.
Njótið lífsins á meðan þið getið það. Því það getur verið of seint á morgun.
Skjáumstum sæta fólk.
kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Eitt og annað...;)
3.6.2008 | 21:41
Hæhæ mínir kæru vinir...
Þá er þessi blessuð helgi liðin.. sem var svona upp og ofan hjá mér, hefði alveg getað verið betri.
En já tónleikarnir á laugardagskvöldið voru æðislegir, ég fór reyndar ekki enda þurftir ég þess ekkert þar sem ég var bara hérna í garðinum heima og hlustaði á þá þar....ferlega næs....;) en það hefði samt verið gaman að sjá liðið á sviði en KALLINN minn nennti engu, nei ég náði ekki að dragann með mér neitt út...:( bara ömurlegt . Þannig að ég var bara út í garði.
Svo eftir tónleikana að þá reyndi ég að fá kallinn með mér á rall en nei það tókst ekki heldur þannig að míns fór þá bara með mínum vinum á djammið.
Ég var ferlega fúl og sár út í kallinn en ég ákvað að láta það ekki skemmileggja neitt fyrir mér, og ég djammaði vel og það vara ógó gaman. Hitti fólk sem ég hafði ekki séð mjög lengi. Við fórum á Catalínu og svo niðrí bæ.
Svo núna er kallinn farin á sjóinn þannig að ég er grasekkja þessa dagana.
En að öðru núna er Perla mín prinsessa komin í sjúkragalla, já hann er reyndar á tjúa en passar svona nokkurn vegin á hana, ermarnar eru að vísu of stórar en ég braut bara upp á þær..hehehe..;) og svo verð ég að laga þær öðru hvoru. ´Já það er allt gert til að reyna að hjálpa dýrinu hún er nefnilega farin að klóra sér til blóðs aftur og það gengur barasta ekki. Ætli ég verði ekki að kaupa sjúkrafóðrið handa henni, það er bara svo helv...dýrt milli 8000 og 9000 kr pokinn. Svo er það í dæminu að taka blóðprufu af henni og senda það út í greiningu til að finna út hvað þetta er sem er að angra hana og það dæmi er sko ráááándýrt hafa þær sagt.
En ég ætla að sjá hvort sjúkragallinn tolli á henni, hún er nefnilega svo klár að klæða sig úr....;)


Perla í sjúkragallanum.
Hún urraði sko á meðan ég var að klæða hana í hann. Er sko ekkert hrifin af þessu. En hún hvorki klóraði né beit mig, hún er svo góð þessi elska, þótt hún láti skap sitt í ljós og leyfi mér að heyra það....;) hehehe..
En jæja ætla að láta þetta nægja í bili, eða þar til næst.
Sjáumstum sæta fólk.
Kv. Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fjör í firðinum....;)
31.5.2008 | 15:22
JÁ HAFNARFJÖRÐUR Á 100 ÁRA AFMÆLI.
Hæhæ kæru vinir...
Hvað segist svo á þessum fallega og bjarta degi????
Það nötrar allt hérna...já húsið nötrar bara..en þó ekki vegna jarðskjálfta sem betur fer...nei það er nefnilega búið að setja upp stærðar svið hérna út á Viðistaðartúni og þeir voru að prufukeyra græjurnar í gærkvöldi og svo var byrjað aftur fyrir kl 11 í morgun. Já það verða miklir tónleikar þarna í kvöld eða frá kl 17 - 23. Þannig að ég fæ tónleikana beint í æð hérna heima hjá mér, þarf ekkert að fara langt gæti þess vegna sett borð og stóla út í garð og setið þar bara...
haft það sko næææææssss..híhíhí..já og svo er nóg um að vera í firðinum þessa helgi..eitthvað um að vera út um allt..enda stór afmæli..
En nú ætla ég að setja upp spari-andlitið og koma mér í betri fötin og kíkja eitthvað út í góða veðrið, og reyna að draga kallinn út og viðran aðeins.
Skjáumstum sæta fólk.
Og hvernig væri að kommenta svona einu sinni til tilbreytingar, ég á mikið af leyni(lesara)aðdáendum....
kv Gunna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eurovision.....undanúrslitin 22 mai..
21.5.2008 | 01:00



Hæhæ kæru vinir...
Nú fer að líða að Eurovisionkeppninni og mig hlakkar ekkert smá til, já ég er Eurovision-fan má segja....
híhí.. en hvað um það ég horfði á forkeppnina í kvöld missti reyndar af helmingnum þar sem það var vitlaus tími skráð í sjónvarpsdagskránni...
En þar sem ég er svona mikill júró-fan að þá var ég búin að hlusta á öll lögin og gefa þeim einkun og mitt álit...
flest af þessum lögum finnst mér alveg hundleiðinleg.
Ég ætlaði alltaf að blogga um lögin sem tóku þátt í forkeppninni í kvöld, en ég var svo upptekin kona í dag var að stússast í öðru, segi frá því seinna. En ég ætla að blogga um forkeppnina sem verður á fimmtudaginn 22 mai, og segja mitt álit á þeim og solleis...
Land..................................mín einkunn..............................og álit.
1) Króatía = Nei glatað lag, á ekki von á því að það komist í úrslit.
Lag: Romanca.
.......................................................................................................................
2) Danmörk = Já hresst lag - spái því að það komist í úrslit.
Lag: All night long.
.......................................................................................................................
3) Búlgaría = Já hresst lag í tecno stíl, spái því að það komist í úrslit.
Lag: Dj-Take me away.
.......................................................................................................................
4) Portúgal = Æji nei þetta lag er ekki að gera sig sko, á ekki von á því að það
komist í úrslit.
Lag: Senhora do mar.
.......................................................................................................................
5) Úkraína = Já hresst og skemmtilegt lag, spái því að það komist í úrslit.
Lag: Shady lady.
.......................................................................................................................
6) Sviss = Ahh veit ekki, ég er ekki að fíla þetta lag, no more comment um
það.
Lag: Era stupendo.
.......................................................................................................................
7) Makedonía = Úff..nei glatað lag, á ekki von á því að það komist í úrslit.
Lag: Vo ime na ljubovta.
.......................................................................................................................
8) ÍSLAND = Já já já hresst og æðislegt lag. Get ekki setið kyrr þegar ég heyri
þetta lag.
Ég spái því að það komist í úrslitin og ekkert
múður með það. VIÐ MUNUM KOMAST ÁTRAM.
Lag: This is my life.
.......................................................................................................................
9) Kýpur = Æji nei þetta lag hrýfur mig ekki, á ekki von á því að það komist í
úrslit.
Lag: Femme fatale.
.......................................................................................................................
10) Lettland = Já hresst lag, hugurinn komst á flug og datt inn í
kráarstemningu með víkingum í klæðum kartöflupoka með
reypi fyrir belti, hahahaha..... skondið og öfug snúið eitthvað.
Spái því að það komist í úrslit.
Lag: Wolves of the sea.
.......................................................................................................................
11) Hvítarússland = Allt í lagi lag hresst og sonna, en það rífur mig ekkert upp
úr stólnum samt sko. Spái því að það komist í úrslit.
Lag: Hasta la vista.
.......................................................................................................................
12) Ungverjaland = Æji nei ekki fyrir minn smekk takk, á ekki von á því að
komist í úrslit.
Lag: Szivverés.
.......................................................................................................................
13) Albanía = Nei held ekki, þetta er rólegt og fallegt lag, en ekki meira. Á ekki
von á því að það komist í úrslitin.
Lag: Zemren E lame peng.
.......................................................................................................................
14) Svíþjóð = Já hresst lag, spái því að það komist í úrslit. En af söngkonunni
að segja, að þegar ég sá myndbandið fyrst að þá virkaði hún á
mig sem mjónu með anorexíu og með útlit geimveru. En sá svo
fleiri myndir og sá að þetta var farðin sem kom svona út. Bara
skelfilegt. En hún skal ekki dirfast að stela af okkur sætinu aftur.
eins og hún gerði árið 1999. ÓÓÓ...nei...
Lag: Hero.
.......................................................................................................................
15) Tyrkland = Nei þetta lag hryfur mig ekkert, fær ekki einu sinni litlu tá til
að skaka sér. Það er svona 50%-50% hvort það komist í úrslit.
En á samt ekkert von á því.
Lag: Deli.
.......................................................................................................................
16) Litháen = Nei hjálp segi ég bara, Á ekki von á því að það komist í úrslit.
Ef þetta lag kemst áfram að þá er það fínt klósettpásulag.
ALLIR Á KLÓSETTIÐ ÞÁ..
hahaha...
Lag: Nomads in the night.
.......................................................................................................................
17) Georgia = Nei ekki alveg að gera sig fyrir minn smekk. Þeir gætu notað
þetta lag sem uppfyllingarlag til að fylla upp í kvótann á
úrslitatöflunni.
Lag: Pcace will com.
.......................................................................................................................
18) Tékkland = Já ferskt lag, fékk aðra löppina til að dilla sér. Spái því að það
komist í úrslit.
Lag: Have some fun.
.......................................................................................................................
19) Malta = Ahh..veit ekki, þetta lag hryfur mig ekkert, ég kemst allavega
ekki á flug. En spái því ekki langt sko.
Lag: Vodka.
.......................................................................................................................
En þetta er auðvitað bara mitt mat, og þarf ekki að endurspegla mat HEIMSINS.
En við skjáumstum sæta fólk.
kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18 dagurinn...
19.5.2008 | 23:04

Hæhæ kæru vinir, hvernig væri að blogga eitthvað. Ég er ekki bara að drukkna, ég ER að drukkna í fréttum vegna atburða síðustu 18 daga..já aðeins. Svo það er eins gott að koma því frá sér hér á bloggið áður en ég drukkna alveg.
Eins og fólk hefur kannski tekið eftir að þá hef ég ekki bloggað neitt alvöru blogg núna undan farið hef bara komið með eitt og annað hingað af gamla blogginu, en núna kemur ALVÖRU blogg..
já eða 18 daga blogg sko..hehehe... en ég ætla ekki að fara alveg í smæstu atriðin nema þá kannski sumstaðar..

Ení hú.. það er best að fara að byrja á bullinu, þið sem lásuð bloggið frá 1 mai( á hinni bloggsíðunni minni) að þá kom hann (kötturinn) Tímó til mín þann 1 mai (eftir 5 ára fjarveru) og ég var frekar hrædd um samkomulagið á milli hans og Perlu minnar (sem er köttur) jújú hann fékk að dúsa fyrst um sinn í búri svona rétt á meðan þau voru að venjast hvort öðru, það var bara urr og hvæs. Um nóttina varð ég að loka Tímó inn í þvottahúsi því samkomulagið var ekki gott. Hann mjálmaði og vældi sig hásann, það var skelfilegt að heyra í honum daginn eftir vegna hæsi.
En ég fór á dýraspítalann og keypti svona apparat sem stungið er í samband og frá þessu kemur lykt sem dýrin ein finna en ekki við. Og þessi lykt er sú sama og kettir gefa frá sér og á að róa þau.
Þetta er allt í áttina í dag en Tímó er svo mikill púki hann má ekki sjá hana Perlu að þá hleypur hann að henni eins og hann ætli að stökkva á hana, en hann slær til hennar stundum. Þannig hefur þetta gengið, en engin slagsmál sem betur fer.

En í morgun byrjaði hún Perla mín að breima
já allt mér að kenna þar sem ég gleymdi að gefa henni pilluna í síðustu viku,
já skömmin ég. En ég gaf henni pilluna í gærkvöldi og hugsaði einmitt þá hvort það væri of seint og hún færi að breima.ÚFF...bara, en hún er ekki svona hávaða söm eins og aðrir kettir það er oft erfitt að greina það hvort hún sé að breima eða ekki þar sem það kurrar meira í henni heldur en hitt og svo nuddar hún sér utan í allt og veltir sér á gólfinu og vill bara láta klappa sér..hehe..
En að öðru að þá eignaðist ég frænda þann 2 mai,(átti að koma 7 mai) já einn af mínum bræðrum var að eignast sitt 3ja, hann er algjört krútt sá stutti, hann sver sig sko í ættina sá, hann fæddist með þvílíkan lubba eins og ég og þessi bróðir minn...
hann er bara hinn sprækasti og gengur bara vel með hann.
Eins dags gamall.

Árni Fannar Kristjánsson.

Ca viku gamall.
Nú svo þar sem ég fór á röltið í netheiminum að þá staldraði ég við bloggið hjá einum frænda mínum og þar rak ég augun í að þann 1 mai þá eignaðist ég frænku..já það fjölgar í báðum ættum. Á því miður enga mynd af henni.
Svo um hvítasunnuna að þá vorum við hjónaleysin í letistuði vorum bara heima og við klæddum okkur ekki einu sinni..hehehe.. hámark letinar sem sagt.
En svo á þriðjudaginn að þá var farið að búðarápast, fórum í Kringluna og sá eitt og annað í Next og það var keypt eitt og annað, já vorum að lagfæra fataskápinn þar sem hann var ónýtur..
Svo var komið við í Smáralindinni og þar fór ég í Zöru og þar var líka eitt og annað keypt. Já keypti líka í Vera moda. En fataskápurinn ætti að vera komin í lag þar sem keypt var fyrir 59.000kr á einu bretti og það bara á mig sko..svo keypti hann á sig annað eins.. í Jack og Jonse..þannig að við ættum að vera vel stödd fatalega séð í bili.
Svo var farið aftur að búðarápast á föstudaginn og hann bættu einhverju við á sig.. Fórum líka að skoða græjur, mig vantar svo græjur en ætlum að skoða það aðeins betur, kíkja svona í kringum okkur því þær verða að vera almennilegar sko..
ekkert drasl takk fyrir.
Nú svo á föstudagskvöldinu að þá fengum við næturgesti, mágkona hans Salla og börnin hennar 4 + 1 hundur...
svo komu fl gestir og þar kom 1 hundur til viðbótar. Þannig að það var mikið fjör, 7 fullornir, 4 börn, 2 hundar og 2 kettir...hehehehe..já þið getið ímyndað ykkur það.
Jæja ætli ég láti þetta bull mitt ekki nægja í bili, þetta er orðið ansi langt blogg sko. Ég gæti alveg ritað eitthvað meira en nei ekki núna. Myndirnar sem þið sjáið hér á blogginu sem eru í hinu og þessu er það sem ég hef verið að dúttla við að búa til undan farið, já ég hef verið að dunda mér við þetta og er búin að gera alveg heilan helling það er svo gaman að þessu að ég er óstöðvandi þegar ég byrja. Langaði svona aðeins að koma með smá sýnishorn... ég er ógó stolt af þessu.

Skjáumstum sæta fólk, kv Gunna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er bara að prufa.
12.5.2008 | 23:46
Sælt veri fólkið..Ég er bara að prufa þetta hérna ég er reyndar með bloggsíðu á öðrum stað. En það er allt í lagi að prufa þetta hérna og vera hér og þar.... Ég er svo sem engin svaka bloggari enda þarf maður ekki að vera það til að blogga. Ég luma á einu og öðru sem ég get sett hér inn...
En slóðin á hina bloggsíðuna mína er http://www.123.is/gunna61 ef þið hafið áhuga fyrir að kíkja...
En ætli ég láti þetta ekki nægja í bili eða þar til næst. Kv Gunna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)