Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

VIÐVÖRUN!!!!!!!

Þetta er útaf barnaperra á MSN sem addar stelpum og berar sig svo í webba og svoldið meira en það!!!!!  

MSN addressan hjá honum er::   xjr1300@hotmail.com .. Hann kallar sig mit_labrador á msn.

 

Ég vildi bara vara ÞIG við honum!!

 

SEND ÞÚ ÞETTA ÁFRAM, til allra sem
þú þekkir, hvort sem það sé systir þín eða vinkona og vondandi
mun hún sjá
sér fært í því að senda þetta til
allra sem hann þekkir!! 

 

ÞAÐ ÞARF AÐ VARA STELPURNAR VIÐ HONUM!!!!

Ég fékk þetta sent á msn og vildi koma því áfram til að vara fólk við.

Þetta er hreinn horbjóður..Angry

kv Gunna.


Ég bíð enn!!!

 

ÉG BÍÐ ENN !!(Það virkar ekki þannig að?.. )

ÉG BÍÐ ENN.

Ég gerði allt sem mér var sagt !

Sendi email til 10 mans eins og ég átti að gera.

att38825141.gif

Ég er ennþá að bíða eftir að kraftaverkið gerist.

~~~~

Til allra vina minna sem á síðasta ári sendu mér keðjuverkandi email með loforðum?????.

Þar sem mér var lofað englavernd og kærleika ást og hamingju að ég tali nú ekki um hinn fullkomna eiginmann og elskhuga. Loforð um heppni í bunkum, kraftaverkum og hamingju.

Ef ég myndi áframsenda þessi email til að minnsta kosti 10 vina minna.

(Sem ég að sjálfssögðu gerði samviskusamlega)
EKKERT AF ÞVÍ BULLI VIRKAÐI !!

Þess vegna bið ég ykkur kæru vinir um að senda mér bara:? pening , vodka, súkkulaði, bíó-miða,

bensíninneign eða sólarlandaferð að eigin vali í staðin?.

Með fyrirfram þökk og kærleika.

Kv. Gunna.

 


Góð pæling...;)



 

 Þetta fær mann svo sannalega til að hugsa og pæla.


Gríptu tækifærið.


Vinur minn opnaði undirfataskúffu konu sinnar og tók upp gjafapakka vafinn inní silkipappír:
"þetta er engin venjulegur pakki." Hann opnaði pakkann og starði á bæði pappírinn og undirfötin sem í honum voru.
Ég gaf henni þetta þegar við fórum til New York í fyrsta sinn fyrir 8eða 9 árum síðan.
Hún hefur aldrei farið í þetta. Var að spara það fram að sérstakri stund. Eða.... ég held hún hafi verið að spara það." Hann færði sig nær rúminu og setti pakkann hjá hinum fötunum sem hann ætlaði að taka með á jarðarfarastofuna, konan hans var nýlátin.
Hann snéri sér að mér og sagði: "það á aldrei að geyma eitthvað til þess að nota það á sérstakri stund. Hver dagur er sérstök stund." Ég held enn að þessi orð hafi breytt lífi mínu. Núna les ég meira og þríf minna. Ég sit í garðinum án þess að hafa áhyggjur af neinu. Ég eyði meiri tíma með fjölskyldunni og minni tíma í vinnunni. Ég skildi það þarna að lífið á að vera uppspretta reynslu sem maður á að njóta en ekki aðeins að þrauka í gegnum. Ég geymi ekki neitt lengur, ég nota kristalsglös á hverjum degi. Ég fer í nýju fötunum mínum í búðina ef mig langar til þess. Ég geymi ekki uppáhalds ilmvatnið mitt fyrir sérstök tækifæri. Ég nota það hvenær sem mig langar til. Orðin "einhverntímann" og "einhverndaginn" eru að hverfa burt úr orðaforða mínum. Ef það er þess virði að sjá, hlusta eða gera, þá vil ég sjá, hlusta og gera það núna. Ég veit ekki hvað eiginkona vinar míns hefði gert ef hún hefði vitað að hún yrði ekki með okkur morguninn eftir, það getur engin vitað.Ég held að hún hefði hóað í fjölskyldu sína og nánustu vini. Hún gæti jafnvel hafað kallað á gamla vini til að koma sátt á fornar deilur. Ég vil líka gjarnan trúa því að hún hefði farið út að borða á kínverskan veitingastað, sem var hennar uppáhald. Það eru þessir litlu hlutir sem ég myndi sjá eftir að hafa ekki gert, ef ég vissi að minn tími væri kominn. Ég myndi sjá eftir því að hafa ekki gert þetta vegna þess að ég mun aldrei framar sjá vini mína, og bréf.....bréf sem ég ætlaði alltaf að skrifa....."einhverntímann." Ég myndi sjá eftir því og vera sorgmædd vegna þess að ég sagði hvorki systkinum mínum né börnum nógu oft hversu mjög mér þætti vænt um þau. Núna reyni ég hvorki að fresta, tefja eða geyma nokkuð sem gæti fært gleði og hlátur inní líf okkar. Og á hverjum morgni segi ég við sjálfa mig þetta er minn sérstakur dagur. Hver dagur, hver stund, hver mínúta er sérstök. Ef þú færð þetta bréf þá er það vegna þess að einhverjum þykir vænt um þig og vegna þess, sennilega, að þarna úti er einhver sem þér þykir líka vænt um. Ef þú ert of upptekin til að senda þetta til annarra og segir við sjálfa þig að þú munir "senda þetta við tækifæri" mundu að "einhverndaginn" er langt í burtu......eða kemur kannski aldrei.......

Ég náði í þetta af gamla blogginu mínu og ákvað að setja það hér inn. Það er svo mikið til í þessari sögu og maður ætti að taka hana alvarlega og pæla í henni. Ég pældi töluvert í henni og það má segja að ég lifi fyrir daginn í dag eins og alkarnir gera, þó ég sé engin alki.
Þú lifðir daginn í gær og hann tilheyrir fortíðinni þar sem hann er liðinn. Þú átt daginn í dag og farðu vel með hann og gerðu það sem þig langar. Þú átt ekki daginn á morgun því hann er ekki kominn og tilheyrir framtíðinni, og veist ekkert hvort hann kemur.
Ég þarf svo sem ekkert að bollaleggja þetta meir.
Njótið lífsins á meðan þið getið það. Því það getur verið of seint á morgun.
Skjáumstum sæta fólk.
kv Gunna.


Heimilisfræði ....;)


Heimilisfræði fyrir nútímakonur og menn.

 
Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræði síðan 1950.
Settar hafa verið inn VIÐBÆTUR FYRIR NÚTÍMAKONUR:

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.
LÁTT'ANN SVO GANGA FRÁ ÖLLU Í ELDHÚSINU OG VASKA UPP ÞAÐ SEM EKKI KEMST Í UPPÞVOTTAVÉLINA!!!!

2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
SEGÐU HONUM SVO AÐ FARA Í STURTU OG ÞVO AF SÉR ÞENNAN ÞREYTUSVIP ÞVÍ ÞÚ HEFUR EKKI ORKU Í NEIN LEIÐINDI!!!

3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
ÞEGAR HANN HEFUR SLAPPAÐ AF Í UM 5 MÍNÚTUR SEND'ANN ÞÁ Í SORPU MEÐ DRASLIÐ!!!

4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim.. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
LÁTT'ANN SVO HJÁLPA KRÖKKUNUM MEÐ STÆRÐFRÆÐINA ÞVÍ ÞÚ ERT BÚIN AÐ FÁ NÓG AF RIFRILDINU Í ÞEIM OG ÞARFT SMÁ FRIÐ TIL AÐ ELDA!!!!

5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
JÁ OK RAFMAGNIÐ FÓR AF, KRAKKARNIR ERU Í AFMÆLI OG ÞÚ ERT HÁLFNUÐ MEÐ HVÍTVÍNSFLÖSKUNA!!!!

6. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúinn með kaldan eða heitan drykk handa honum.. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
NOTAÐU TÆKIFÆRIÐ OG SEGÐ'ONUM AÐ VISAREIKNINGURINN SÉ KOMINN, ÞIG LANGI Í NÝJA ELDHÚSINNRÉTTINGU OG AÐ ÞÚ SÉRT AÐ FARA Í HELGARFERÐ TIL LONDON MEÐ SAUMÓ, ÞAÐ ER MIKLU AUÐVELDARA FYRIR HANN AÐ TAKA ÖLLU ÞESSU ÞEGAR HANN ER Í RÓ OG NÆÐI!!!

7. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.
FARÐU HINS VEGAR OFT OG REGLULEGA ÚT MEÐ STELPUNUM SVO ÞÚ KOÐNIR EKKI NIÐUR AF LEIÐINDUM MEÐ ÞESSU VIÐKVÆMA BLÓMI!!!!

Hehehehe....þar hafið þið það stelpur mínar.
Skjáumstum sæta fólk, ætla að ná í meira af hinni bloggsíðunni minni. Þar er margt sem ég hef ekki sett á bloggið áður, þá meina ég bæði þar og hér. Heldur setti ég það í geymslu eða í vistun án byrtingar..hehehehe....

kv Gunna.

 


Eitt og annað...;)



Hæhæ mínir kæru vinir...
Þá er þessi blessuð helgi liðin.. sem var svona upp og ofan hjá mér, hefði alveg getað verið betri.
En já tónleikarnir á laugardagskvöldið voru æðislegir, ég fór reyndar ekki enda þurftir ég þess ekkert þar sem ég var bara hérna í garðinum heima og hlustaði á þá þar....ferlega næs....;) en það hefði samt verið gaman að sjá liðið á sviði en KALLINN minn nennti engu, nei ég náði ekki að dragann með mér neitt út...:( bara ömurlegt . Þannig að ég var bara út í garði.
Svo eftir tónleikana að þá reyndi ég að fá kallinn með mér á rall en nei það tókst ekki heldur þannig að míns fór þá bara með mínum vinum á djammið.
Ég var ferlega fúl og sár út í kallinn en ég ákvað að láta það ekki skemmileggja neitt fyrir mér, og ég djammaði vel og það vara ógó gaman. Hitti fólk sem ég hafði ekki séð mjög lengi. Við fórum á Catalínu og svo niðrí bæ.
Svo núna er kallinn farin á sjóinn þannig að ég er grasekkja þessa dagana.

En að öðru núna er Perla mín prinsessa komin í sjúkragalla, já hann er reyndar á tjúa en passar svona nokkurn vegin á hana, ermarnar eru að vísu of stórar en ég braut bara upp á þær..hehehe..;) og svo verð ég að laga þær öðru hvoru. ´Já það er allt gert til að reyna að hjálpa dýrinu hún er nefnilega farin að klóra sér til blóðs aftur og það gengur barasta ekki. Ætli ég verði ekki að kaupa sjúkrafóðrið handa henni, það er bara svo helv...dýrt milli 8000 og 9000 kr pokinn. Svo er það í dæminu að taka blóðprufu af henni og senda það út í greiningu til að finna út hvað þetta er sem er að angra hana og það dæmi er sko ráááándýrt hafa þær sagt.
En ég ætla að sjá hvort sjúkragallinn tolli á henni, hún er nefnilega svo klár að klæða sig úr....;)




Perla í sjúkragallanum.

Hún urraði sko á meðan ég var að klæða hana í hann. Er sko ekkert hrifin af þessu. En hún hvorki klóraði né beit mig, hún er svo góð þessi elska, þótt hún láti skap sitt í ljós og leyfi mér að heyra  það....;) hehehe..

En jæja ætla að láta þetta nægja í bili, eða þar til næst.
Sjáumstum sæta fólk.

Kv. Gunna.


Markaðssetning.....;)





Markaðssetning með öllu tilheyrandi.

Fólk biður oft um útskýringu á "markaðssetningu." Jæja hér kemur hún:

*Þú sérð flottan mann í partýi. Þú ferð upp að honum og
segir, "Ég er frábær í rúminu."
Þetta er bein markaðssetning.

*Þú ert í partýi með fullt af vinum og sérð flottan mann. Einn af vinum
þínum fer upp að honum,bendir á þig og segir, "hún er frábær í rúminu."
Þetta er auglýsing.

*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Þú labbar upp að honum, færð
símanúmerið hans, hringir í
hann daginn eftir og segir, "Hæ, ég er frábær í rúminu."
Þetta er símamarkaðsetning.

*Þú ert í partýi og sérð flottan mann, þú lagar til fötin þín, labbar upp
að honum og réttir honum
glasið þitt og segir við hann, "Fyrirgefðu, má ég"? Lagar bindið hans,
nuddar brjóstunum létt
utan í hann og segir, "Ó á meðan ég man, ég er frábær í rúminu."
Þetta eru almannatengsl.

*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann labbar upp að þér og segir,
"Ég hef heyrt að þú sért frábær í rúminu."
Þetta er þekkt vörumerki.

*Þú ert í partýi og sérð flottan mann. Hann langar í þig en þú færð hann
til að fara heim með vinkonu þinni.
Þetta er söluorðspor.

*Vinkona þín getur ekki fullnægt honum, svo hann hringir í þig.
Þetta er tækniaðstoð.

*Þú ert á leið í partý þegar þú uppgötvar að það gætu verið flottir menn
í öllum þessum húsum sem þú ert að labba framhjá.
Svo þú klifrar upp á þakið á einu af þessum húsum, sirka í miðjunni
og öskrar úr þér lungun, "Ég er frábær í rúminu."
Þetta er ruslpóstur.

Skjáumstum sæta fólk.

Kv. Gunna. 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband