Helgin...;)
30.11.2008 | 11:54
Hæhæ kæru vinir. Hvað syngur svo í ykkur???
Ég er búin að vera ógó dugleg um helgina....jamm maður verður að hrósa sér sjálfur því það er engin hérna á heimilinu til þess.
Neibb ég er nefnilega ennþá grasekkja.
Eníhú...ég setti upp jólaljósin í öll herbergi og stofuna á föstudagskvöldið..en á eftir að setja ljós í eldhús-gluggann, ég ætlaði að setja sömu seríuna og ég var með í fyrra eeeen... það þurfti auðvitað að vera 2 perur sprungnar.
Þetta er óttalegt einnota-kjaftæði svo er miklu dýrara að kaupa perur en seríuna sjálfa. Þannig að ég þarf að fara í seríu-leiðangur á morgun.
En ég verð að reyna að halda mér á mottunni því það er hættulegt að hleypa mér inn í jóladótadeildina, ég fæ hreynt út sagt kast, ég er svo mikið jólabarn. Samt er ég ekki fædd í desember sko.
En að öðru....ég er að fara í kaffiboð til múttu í dag þar sem einn af mínum bræðrum á afmæli í dag, en það er ekkert stór-afmæli bara svona smá... Til hamingju með daginn elsku Eiki minn, og njóttu hans vel.
Ég ætla að búa til salöt og fara með, líka til að létta aðeins undir fyrir mömmu hún er ekkert alltof góð til heilsunnar.
Jæja ætli ég verði ekki að drífa mig að gera það sem þarf áður en ég fer.
Eigið góðan dag kæru vinir og njótið fyrsta dag aðventunar.
Skjáumstum sæta fólk.
Munið að kommenta.
Kv Gunna.
Athugasemdir
Aldeilis dugnaður í minni stelpu, hér er bæra rölt um á hækjum, og ég bíð eftir að einhver af börnunum líti inn og hjálpi gömlu í des. ég er alltaf sein til að skreyta byrja ekki fyrr en eftir 10.des. Knús inn í daginn
Ásdís Sigurðardóttir, 30.11.2008 kl. 12:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.