Knúsvikan mikla....;D
14.10.2008 | 23:56
Hæhæ kæru vinir...
Ég fékk þetta sent og vildi deila því með ykkur. Líka að hugga ykkur vegna bloggfærslunar á undan...að þá fannst mér alveg upplagt að knúsa ykkur.
KNÚSVIKAN MIKLA
Þegar staðan á íslandinu okkar er eins og hún er er afar mikilvægt að við stöndum öll saman, sýnum nærgætni, og látum ekki svartsýni og pirring ná tökum á okkur. Það þurfa allir að hugsa vel um sig, gæta þess að fá nægan svefn og velta sér ekki of mikið uppúr fréttum hvers dags (Gott að skammta sér ákveðið magn á dag) En það er ekki síður mikilvægara að við hugum að öðrum og séum vakandi yfir vinum, kunningjum, ættingjum okkar og samferðafólki, við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta og vera til staðar. Að mínu mati er eitt það mikilvægasta sem við getum gert er að knúsast, gott faðmlag er það sem að allir þurfa á að halda og sanniði til að þeir sem fá nóg af knúsi eru ríkir og eru tilbúnari fyrir lífið og verkefni dagsins. |
Ég skora á alla að taka þátt....... Fjölskylduhópknús á hverjum morgni Ánægja með það sem menn hafa er mesti og varanlegasti auðurinn Ef þú ert ekki ánægður með það sem þú hefur, hví skyldir þú vera sælli með meira? Ég sendi STÓRT KNÚS til ykkar allra elskurnar. Skjáumst sæta fólk. Munið að kommenta. Kv. Gunna. |
Athugasemdir
Maður á alltaf til nóg af knúsi svo þú færð stórt knússs hafðu það ljúft
Brynja skordal, 15.10.2008 kl. 15:29
Gott innlegg ;)
Aprílrós, 15.10.2008 kl. 20:02
Knús vina mín
Erna, 15.10.2008 kl. 22:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.