Hæhæ, ég er hress stelpa og hef gaman af lífinu. Blogga frá engu og upp í allt... Ég er Reykjavíkurmær en fluttist í Hafnarfjörð, já svona AA sem túlkast sem aðfluttur andskoti. Ef þig langar að vita meira um mig, klikkaðu þá á myndina.
Hæhæ kæru vinir... Nú erum við turtildúfur að leggja land undir fót og fara norður á Akureyri og ætlum að gista þar í tvær nætur á Hóteli. Ætluðum ekki að fara fyrr en á morgun en við breyttum því og ætlum að fara í dag. Förum í heimsóknir hingað og þangað og líka á Dalvík. Þannig að það er fínt að nota daginn á morgun í það. Minn kall á ættingja þarna frænkur, frændur, ömmu og afa. Og svo eru börnin hans þarna líka. Við förum svo á sunnudaginn í brúðkaup sem verður í Þingeyraklausturskirkju og veislan verður haldin á Hótel Borgarvirki. Já bróðir kallsins er að fara að gifta sig. Þannig að það verður nóg að gera um helgina. Við förum svo suður á sunnudagskvöldið og börnin hans með okkur. Þau verða hér´hjá okkur í 2-3 vikur eða allavega það. Sonur minn ætlar að huga að köttunum mínum og koma til að fylla á matarskálarnar og sonna. En það þýðir ekkert að vera að slæpast hér í tölvunni, þarf að henda einhverju í tösku sem ég ætla að hafa með mér. Vona að þið hafið það sem best um helgina. Skjáumstum sæta fólk, ég blogga aftur þegar ég kem til baka. kv. Gunna.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.